05.04.1932
Neðri deild: 43. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1867 í B-deild Alþingistíðinda. (1967)
294. mál, frystihús á kjötútflutningshöfnum
Magnús Guðmundsson:
Það var ekki von, að stj., sem var hér á landi 1924, beindi beiðni til hæstv. forsrh., sem þá var ritstjóri „Tímans“, um að ræða ekki málið, vegna þess, að málið var komið af stað löngu áður en þáv. stj. kom til valda. Hæstv. ráðh. sagði, að það hafi verið miklu meira að vinna með kjöttollssamningnum 1924 en nú. Það er sjálfsagt rétt, en þá var líka miklu meira að tapa með því að gera þetta að æsingamáli innanlands og í Noregi. Ef það er nauðsyn að þegja nú, þá var enn þá meiri nauðsyn að þegja þá.
Hvað viðvíkur frystihúsinu á Húsavík, þá man ég ekki betur en að það hafi verið veðdeildarlán, sem það fékk í Búnaðarbankanum. Það er lán með miklu betri kjörum en venjuleg bankalán. Ég mundi fyrir hönd Sláturfél. Skagfirðinga vera mjög ánægður með að fá lán með sömu kjörum, eða ábyrgð á láni með þeim kjörum.