31.03.1932
Neðri deild: 39. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1882 í B-deild Alþingistíðinda. (2000)

215. mál, millisíld úr búi Síldareinkasölu Íslands

Flm. (Guðfbrandur Ísberg):

Það er rétt, að eigi bráðabirgðalög að verða að lögum, þurfa þau að hljóta staðfestingu Alþ. óbreytt að efni til. En smávægilegar orðabreyt. má þó á þeim gera. Ég vil benda á það, að frv. til laga um skiptameðferð á búi Síldareinkasölu Íslands hefir þegar hlotið afgr. sjútvn., þótt áliti n. hafi eigi enn verið útbýtt. Ég hefi skrifað undir nál. með fyrirvara, með það fyrir augum, að ef mér virðist blasa mjög óbyrlega fyrir þessu máli, mun ég bera fram brtt. við það við 2. umr. þess.