31.03.1932
Neðri deild: 39. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1883 í B-deild Alþingistíðinda. (2002)
215. mál, millisíld úr búi Síldareinkasölu Íslands
Flm. (Guðbrandur Ísberg):
Ég álít, að hér sé ekki um það að ræða, að veita nokkrum skuldheimtumanni forréttindi í búi Síldareinkasölu Íslands.
Að því er snertir þessa síld, sem send var til Kaupmannahafnar, ca. 400 tunnur, þá var það fyrst og fremst umboðssala, eins og ég gat um, og í öðru lagi var andvirðið eigi greitt fyrr en búið var að taka bú einkasölunnar til skiptameðferðar, og á því af þeirri ástæðu að vera hægt að halda því utan við bú einkasölunnar sem því óviðkomandi, þó skilanefnd hafi eigi viljað gera það, það sem af er.
Hvað Austfjarðarsíldina snertir, þá hefir mér ekki verið annað um hana kunnugt en það, að fáeinar tunnur af henni hafi lent í búi einkasölunnar samkv. 5. gr. bráðabirgðalaganna. Mér er heldur ekki kunnugt um, hvenær andvirði hennar hefir komið inn. En hafi andvirði þeirrar millisíldar, eins og Norðurlandssíldarinnar, sem um ræðir í frv. því, sem hér liggur fyrir, einnig komið inn eftir að þú síldareinkasölunnar var tekið til skiptameðferðar, ætti einnig að mega halda því utan við búið.
Hér er því fyrst og fremst um að ræða þá síld, sem send var með „Íslandi“ seint í nóv., ca. 20 þús. kr. virði, og í öðru lagi um eftirstöðvar af andvirði millisíldar frá fyrra hausti, ca. 9 hús. kr., sem síldareinkasalan mun beinlínis hafa verið búin að setja á reikning og nafn síldareigenda í banka. Er hér farið fram á, að þessi upphæð verði líka greidd, þar sem virðist viðurkennt af einkasölunni, að hún hafi aðeins verið geymd um stundarsakir til úthlutunar. Ég efast um, að skilan. hafi talið það ósanngjarnt, að orðið yrði við þeirri kröfu; aðeins talið sig bresta heimild til þess. Í þriðja lagi er svo andvirði Austfjarðasíldarinnar, sem hjá einkasölunni lenti. Er sjálfsagt að taka það atriði til athugunar í nefnd. Og reynist eins ástatt um hana sem Norðurlandssíldina, þá eiga Austfirðingar að sjálfsögðu sama rétt til þess að fá hlut sinn leiðréttan, og mun ég verða manna síðastur til að bera hlut þeirra fyrir borð í því efni.