30.04.1932
Neðri deild: 64. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1900 í B-deild Alþingistíðinda. (2079)

555. mál, skipun barnakennara og laun þeirra

Fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson) [óyfirl.]:

Ég ætla að þakka n. fyrir að hafa flutt þetta frv., þótt það beri með sér, að ekki er unnt nú að fullnægja þörfum kennara.

Það er sjálfsagt, að bæirnir beri útgjöldin við, að barnakennarar fái jafna dýrtíðaruppbót og aðrir starfsmenn þeirra. Þetta er sjálfsögð lagfæring. Ég hygg, að Rvík hafi ekki fallizt á að greiða kennurunum þessa uppbót vegna þess, að ekki var bein lagaskylda til þess, en hún mun sætta sig við það, ef lög verða um það sett.

Staðaruppbót sem þessi er nauðsynleg lagt launuðum starfsmönnum. En það er erfitt að finna grundvöll til að byggja á. Ég hygg, að grundvöllur sá, sem hv. þm. Seyðf. stingur upp á, yrði einna réttlátastur og beztur. Ég hefi átt tal um þetta við hagstofustjóra, og mun það líka vera hans álit, að heppilegast verði að miða við húsaleiguna.

Það er nú svo, að kennarar eru lægst launuðu starfsmenn þjóðfélagsins; af þeim er heimtað, að þeir vinni mikið starf í einlægni, og á síðasta áratug hefir vaxið löngunin hjá þessari stétt til að geta gefið sig alla við þessu starfi, en þurfa ekki að truflast af aukastörfum. Enda hefir á síðustu 10 árunum orðið geysileg breyt. á kröfum þeim, sem gerðar eru til kennara. Fyrr var lexíunám og yfirheyrslur látið nægja, en kröfurnar eru nú orðnar allt aðrar og heimta meiri undirbúning undir kennsluna og meiri samvistir við börnin, svo að starf kennara nú er ekki sambærilegt við það, sem áður var. Þessi löngun kennaranna til að vera óskiptir við starf sitt leiðir af sér, að þingið verður að sinna kröfum þeirra um bætt kjör. Það sjá allir, hver er afkoma fjölskyldumanns, sem hefir 200–300 kr. á man. hér í Rvík. En ég er hræddur um, að þörfum kennara í framtíðinni verði ekki fullnægt nema munur verði gerður á fjölskyldumönnum og einhleypum. En hinir erfiðu tímar, sem nú standa yfir, banna að gera nokkuð verulega fyrir kennarana, og þetta mun vera það mesta, er hv. menntmn. treystir sér að bera fram. En þarfir kennara þagna ekki, þó þetta frv. verið samþ., og þær munu fara vaxandi með batnandi tímum.