30.04.1932
Neðri deild: 64. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1906 í B-deild Alþingistíðinda. (2086)

555. mál, skipun barnakennara og laun þeirra

Fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson) [óyfirl.]:

Ég vil leiðrétta hv. þm. N.-Ísf. Það er ekki, eins og hann hélt, Alþ. eða ríkið, sem ákveður, hve margir kennarar skuli vera í hverju skólahéraði. Það eru héruðin sjálf, sem ráða því. Ríkið hefir aðeins skuldbundið sig til að sinna þeirri kröfu, að 1 kennari megi koma á hver 30 börn. En bæirnir hafa yfirleitt keppt að því að komast í þetta hámark. Þetta er hin eina regla, er ríkið setur héruðunum um tölu kennara.

Í Svíþjóð og Þýzkalandi eru staðarupbætur greiddar af héruðunum. Ég hélt, að eins væri í Danmörku, en veit það ekki með vissu og get þess vegna sleppt að tala um það. Ríkið greiðir kennurum sömu dýrtíðaruppbót og öðrum er borguð og eins og hún er ákveðin á hverjum tíma. Ef bæjarfél. borga mönnum sínum hærri uppbót, þá er eðlilegt, að þau láti kennara sína njóta hins sama. Það er ekki ríkið, sem hefir ákveðið þessa hærri uppbót, og það er óeðlilegt, að bæjarfél., sem hana ákveða, borgi ekki kennurum sínum á sama veg og öðrum starfsmönnum.

Það er ekkert verið að tala um neinn derring hjá þeim bæjarfélögum, sem vilja borga starfsmönnum sínum hærri dýrtíðaruppbót en ríkið greiðir sínum, því dýrtíðaruppbót ríkisins er svo lag, að það eru hinir erfiðu tímar einir, sem gera hana forsvaranlega. Rvík er dýr bær til að lifa í, eins og títt eru um alla stærri bæi og borgir. Hér er því full ástæða til að taka það til greina. En sé það gert, þá mega kennararnir ekki verða út undan.