30.04.1932
Neðri deild: 64. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1908 í B-deild Alþingistíðinda. (2089)

555. mál, skipun barnakennara og laun þeirra

Vilmundur Jónsson:

Út af ummælum hv. þm. N.-Ísf. um að niður hefðu fallið kaupgreiðslur til starfsmanna Ísafjarðarkaupstaðar, sem komu mjög flatt upp á mig, hringdi ég samstundis til bæjarstjórans á Ísafirði, og sagði hann mér, að bærinn hefði til þessa greitt öllum starfsmönnum tilskilið kaup. Þar með er ekki sagt, að erfiðleikar séu þar ekki fyrir hendi eins og annarsstaðar, og mun ekki vera á þá bætandi.

Frv. Þetta mundi raunar ekki koma hart niður á Ísafjarðarkaupstað, þó að lögum yrði, því að þar er ekki það launafyrirkomulag, að starfsmönnum sé greidd dýrtíðaruppbót, en auðvitað mundi það þá ekki heldur koma kennurum þar til góða. Sé ég ekki betur en að frv. sé með öllu vita gagnslaust. Fyrir þá kaupstaði, sent fúslega vilja bæta laun kennara sinna, þarf engin slík lög, en hinir, sem vilja það ekki, verða ekki neyddir til þess á þennan hátt. Til þess að komast í kringum þessi ákvæði, þarf ekki annað en lækka dýrtíðaruppbót annara starfsmanna og hækka laun þeirra að sama skapi — og kennurunum er sýnd veiðin, en ekki gefin.