14.05.1932
Efri deild: 75. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1916 í B-deild Alþingistíðinda. (2106)

555. mál, skipun barnakennara og laun þeirra

Frsm. (Jón Jónsson) [óyfirl.]:

Ég skal aðeins geta þess út af því, sem hv. 1. þm. Reykv. sagði, að n. sá ekki ástæðu til –enda lá það ekki fyrir — að taka það til athugunar, hvort ríkið ætti að borga þessum starfsmönnum hærra en öðrum starfsmönnum í dýrtíðaruppbót, enda kemur það ekki til mála. En hitt áleit n., að gæti komið til mála, ef bærinn líti svo á, að hann þyrfti að borga sínum starfsmönnum hærri dýrtíðaruppbót en ríkið sínum, að hann þá bætti þeim kennurum eitthvað upp líka, sem hann hefir í þjónustu sinni og eru verr settir en aðrir barnakennarar, af því að þeir búa á dýrari stað. En það olli því, að ég gat léð frv. mitt lið, að ég vissi, að þessir starfsmenn hafa mikla þörf fyrir hærri laun, eins og reyndar öll þjóðin hefir horf fyrir hærri laun, og svo hitt, að mér hafði verið tjáð, eins og mér líka skildist á ræðu hv. 1. þm. Reykv., að bæjarstj. hefði ekkert á móti því að greiða kennurum þessa uppbót, en teldi sig bresta lagaheimild til þess. Og því vildi ég ekki spilla, að hún fengi hana.

Ég mæli því með því, að frv. verði samþ., svo að hún geti gert þetta.