14.05.1932
Efri deild: 75. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1917 í B-deild Alþingistíðinda. (2109)
555. mál, skipun barnakennara og laun þeirra
Páll Hermannsson [óyfirl.]:
Það er nú að verða fámennt nokkuð hér í hv. d., og er sjáanlegt, að hugur manna stendur nú meira til hv. Nd. heldur en þess máls, sem hér er til umr. Ég hefi skrifað undir nál. með fyrirvara, af því að í því stendur, að menntmn. leggi til, að það verði samþ. Hv. frsm. sagði, að frv. hefði verið athugað af n., sem er að vísu rétt, því það hefir verið tekið til athugunar á einum fundi. En þegar liðið er á þingtímann eins og nú er, þá eru oft lausatök á málunum hjá nefndum, sérstaklega ef málin eru ekki tekin nema einu sinni fyrir. Svo var því farið um þetta mál, að athugun þess hjá n. var heldur flýtisverk að mínu áliti, og þess vegna skrifaði ég undir nál. með fyrirvara, enda hafa nú við 2. umr. frv. komið fram atriði, sem n. hefir ekki athugað, og sýnir það, að frv. er þörf á frekari athugun.
Ég skal að síðustu taka það fram, að ég mun greiða frv. atkv. til 3. umr., en geymi mér rétt til að koma fram með brtt. við það við 3. umr.