14.05.1932
Efri deild: 75. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1918 í B-deild Alþingistíðinda. (2110)
555. mál, skipun barnakennara og laun þeirra
Jakob Möller [óyfirl.]:
ég vildi bara vekja athygli hv. frsm. á því, að það eru ýmsir starfsmenn ríkisins hér í Rvík, sem búa við svipuð laun og kennararnir og engin ástæða sýnist til að launa verr en þá. Það er ekki hægt annað en telja það sanngjarnt, að allir starfsmenn ríkisins í Rvík, sem vinna álíka vandasöm störf, hafi sömu laun, og með því að einn flokkur þessara starfsmanna er tekinn út úr og kjör hans bætt, þá er það ekkert annað en viðurkenning á því, að kjör hinna séu slæm, og að þeir eigi betur skilið.