17.05.1932
Efri deild: 76. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1927 í B-deild Alþingistíðinda. (2134)

557. mál, sjúkrasamlög

Jakob Möller [óyfirl:

]: Hv. 3. landsk. talaði um það, að sjúkrasamlögin væru sómasamlega styrkt og að æskilegt væri að geta styrkt þau, svo þau gætu starfað. En það er ekki hægt að finna út úr orðum hans, að hann meini þetta, því ef það er æskilegt að halda sjúkrasamlögunum uppi, þá verður að styrkja þau svo, að þau geti haldið áfram starfsemi sinni; annars hljóta þau að hætta að starfa. Það er t. d. óhugsandi, að Sjúkrasamlag Rvíkur geti haldið áfram að starfa með sama styrk og það hefir haft. Það er alveg furðulegt, þegar maður ber saman, hvernig sjúkrasamlög eru styrkt annarsstaðar og hér á landi, að þau skuli geta haldið uppi þessari starfsemi með þeim litla styrk, sem þau fá hér. Ég hefi því miður ekki við hendina gögn um þessa hluti, en ég þori að fullyrða, að ríkissjóðsstyrkur annarsstaðar er margfalt hærri á mann en hér á landi, því heildarupphæðin fer náttúrlega eftir mannfjöldanum á hverjum stað. Það er ástæðulaust að bera upphæðirnar saman og segja svo, að miðað við okkar efnahag séu samlögin vel styrkt. Sjúkrasamlögin hér á landi eru miklu fámennari en annarsstaðar, og þar af leiðir, að bæði að krónu tali og hlutfallslega er miklu minna lagt til þeirra mála hér. Ég get lagt fram gögn viðvíkjandi þessu, en ég hefi þau bara ekki við hendina. Það eru gögn, sem sýna það skilmerkilega, hversu örlítið fé það er, sem lagt er til þessarar starfsemi hér af hinu opinbera. Þó nú séu krepputímar, þá megum við ekki einblína svo á það. Við verðum fyrst og fremst að meta það, hvort við viljum halda þessari starfsemi áfram eða láta hana leggjast niður. Þessi krónuupphæð, sem um er að ræða, er alveg þýðingarlaus í samanburði við þá þýðingu, sem þessi starfsemi getur haft fyrir afkomu almennings. Ég vona, að hv. d. líti meira á þetta en augnabliksfjárþröng ríkisins.