10.05.1932
Neðri deild: 71. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1942 í B-deild Alþingistíðinda. (2157)

528. mál, reksrarlán fyrir Útvegsbanka Íslands h/f

Fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson) [óyfirl.]:

Ég vil einnig þakka n. afgreiðslu þessa máls og get yfirleitt tekið undir viðvörunarorð n., bæði í grg. og nú í ræðu hv. frsm. En um upphæð ábyrgðarinnar skal ég geta þess, að þótt að vísu sé útlit fyrir nú sem stendur, að ekki verði þörf fyrir allt það fé, sem út leit fyrir, að yrði nauðsynlegt 2. apríl, þegar bankaráðið skrifaði sitt bréf, þá munar það ekki svo miklu, að ástæða sé til að færa niður heimildina. Einnig má minna á það, að fyrir utan skyldur bankans til að láta verka fisk og gera út á þeim stöðum, þar sem hann hefir áður staðið undir atvinnuvegunum, þarf hann meira olnbogarúm til almennrar bankastarfsemi en hann hefir haft og mundi hafa, ef engin ábyrgð væri gefin. Ég fellst á till. n. og vænti þess, að frv. verði tekið á sama hátt og frv. því um ábyrgð á rekstrarláni fyrir Landsbankann, sem nýlega var vísað til 3. umr.