03.05.1932
Neðri deild: 66. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 585 í B-deild Alþingistíðinda. (216)
297. mál, fjáraukalög 1931
Frsm. (Hannes Jónsson) [óyfirl.]:
N. hefir haft þetta frv. til athugunar og leggur til, að það verði samþ. með nokkrum breytingum. Þessar breyt., sem n. leggur til að gerðar verði, eru um nýjar upphæðir, sem komið hafa fram síðan frv. var samið og ávísað hefir verið á þennan lið reikningsins. Ég skal fara fljótt yfir sögu og minnast aðallega á þá liði, sem breytingar eru gerðar á.
Í þessu frv. er farið fram á 341035,03 kr. fjárveitingu alls, en verði till. n. samþ., verður sú upphæð um 348000 kr.
Í 2. gr. eru eftirstöðvar af byggingarkostnaði Arnarhváls, að upphæð 125416 kr. Af 49. aths. við LR. sést, að nokkuð af þessu eru eftirstöðvar frá árinu 1930, hitt er svo ýmis kostnaður frá 1931.
Samkv. 3. lið 3. gr. frv. er kostnaður af söfnun innflutningsskýrslna talinn 2594.75 kr. þarna hafði verið lagt skakkt saman og villa komizt í frv.; þessi liður er raunverulega 4055 kr., og ber n. fram brtt. í þá átt, að liðurinn verði hækkaður það, sem þessum mismun nemur.
Af þessari upphæð var allmikið greitt á árinu 1930, en hitt er frá 1931. Endurskoðendur LR. hafa áður minnzt á þessa greiðslu fyrir söfnun innflutningsskýrslna og tekið fram, að þessa upphæð þyrfti að greiða. Það er eftirtektarvert, að aðeins 4–5 starfsmönnum ríkisins hefir verið borgað fyrir þessa skýrslusöfnun; allir aðrir hafa gert það án sérstakrar borgunar. Ég vil undirstrika orð endurskoðenda LR., að réttast væri, að ríkissjóður borgaði engum slík aukaverk.
Um liði 4. gr. er ekki mikið að segja; þeir eru að mestu leyti eftirstöðvar frá 1930. Þar er talsverður byggingarkostnaður í sambandi við spítalann á Kleppi. Þar hefir m. a. verið byggt vandað fjós. Kostnaður við það er í frv. 1040,70 kr. lægri en hann er í raun og veru, og leggur n. því til, að sá liður verði hækkaður um þá upphæð.
Við gjöldin í 5. gr. eru brtt. frá n. Þar er byggingarkostnaður í Bakkaseli útfærður 19000 kr., en á að vera 19438. þessi bygging í Bakkaseli hefir nú kostað um 44000 kr. Saga þess máls er sú, að vegamalastjóri áætlaði upphaflega, að bygging þessi mundi kosta 35000 kr., og lagði til, að sú upphæð væri veitt í þessu skyni. Á Alþingi var þessi upphæð lækkuð niður í 25000 kr., en þar sem ekki hefir þótt fært að draga úr byggingunni hefir þessi viðbótarupphæð verið veitt. Þarna er búið að byggja íbúðarhús, sem er 9x9 m. að stærð, hlöðu, hesthús, fjós og safngryfju, allt úr steini. Byggingarkostnaðurinn er líka ekki orðinn neitt smáræði. 44000 kr., og þá á ekki merkilegri jörð en Bakkasel er. Það má segja, að þarna sé mikil þörf á gististað, því að síðastl. ár fóru þar 1100 bílar framhjá, svo að umferðin er mikil. Sérstaklega er hentugt að hafa þarna gistihús fyrir ferðamenn, sem koma að norðan og eru að fara suður eða vestur í sýslur. Þessi gististaður er að mörgu leyti hliðstæður gistihúsinu í Fornahvammi.
Um aðra liði þessarar gr. hefir n. ekki gert brtt., og læt ég því hér við sitja: Ég mun ekki fara út í það að skýra einstaka liði, enda er það ekki sem þægilegast, þar sem margir þeirra eru eftirstöðvar frá 1930.
Viðvíkjandi liðunum á 6. gr. hefir n. komið með eina brtt., þess efnis, að veitingin til nýs kirkjugarðs hér í Reykjavík verði 29410,00 kr., eins og kostnaðurinn hefir orðið, í stað 28210,00 kr. samkv. frv.
Að því er 7. gr. snertir, þá sé ég ekki ástæðu til að skýra þá liði, sem þar eru, en aftur á móti hefir n. komið með brtt. við 8. gr. 10. lið, sem lýtur að undirbúningskostnaði tryggingarstarfsemi. Hefir þessi kostnaður orðið 4100 kr., og leggur n. því til, að liðurinn verði hækkaður um 500 kr. Þá leggur n. og til, að við þessa gr. bætist nýr liður yfir kostnaðinn af verðrannsóknarn., sem skipuð var samkv. þáltill. á síðasta þingi, en þessi kostnaður nam 600 kr.
Ég sé, að ég mun hafa hlaupið yfir aðra brtt. n. við 5. gr., IV, þess efnis, að tveim nýjum liðum sé bætt inn á frv. Hljóðar annar þeirra upp á 429,74 kr., vegna aðgerðar á gestaskala á Ytri-Kotum, en hinn upp á 1575,92 kr., vegna aðgerðar og viðhalds á húsinu í Fornahvammi. Er þessi kostnaður áfallinn, en var ekki kominn fram, þegar frv. var samið, og upplýstist rétta áður en frv. fór frá n.
Þá vil ég leiðrétta prentvillu, sem er í 9. gr. frv., 10. tölulið. Stendur þar ranglega 1931 fyrir 1930, og verður þetta leiðrétt, þegar frv. verður prentað upp eftir þessa umr.
N. hefir ekki gert fleiri brtt. við frv. en ég nú hefi lýst, en ég tek það fram fyrir hönd n. út af 2. lið 10. gr., þar sem talinn er kostnaður vegna kaupa á skrifstofuvélum handa gjaldheimtumönnum, 2938 kr., að n. telur ekki rétt, að ríkissjóður greiði slíkar fjárhæðir sem þessar handa einstökum gjaldheimtumönnum, en þetta fé hefir skipzt þannig, að sýslumaðurinn á Akureyri hefir fengið 1108 kr. til kaupa á reikningsvél, sýslumaðurinn í Húnavatnssýslu 630 kr. til kaupa á sama, og bæjarfógetinn á Siglufirði 1200 kr. til þess að kaupa margföldunarvél. Mun það nýtt, að tekið er upp á að greiða slíka reikninga sem þessa, og leggur n. eindregið til, að hætt sé að greiða slíkar upphæðir eftirleiðis.
Það væri að vísu hægt að fara nánar til í frv. og skýra betur hina einstöku liði þess, en ég sé þó ekki ástæðu til þess að svo komnu, en áður en ég sest niður vildi ég fara nokkrum orðum um samning frv. og þær reglur, sem fylgt hefir verið um samning fjáraukalaga yfirleitt, og vil ég taka það fram, að ég tala um þetta frá eigin brjósti, en ekki fyrir hönd nefndarinnar.
Ég hefi ekki kynnt mér það, hve gömul sú regla er, að stjórnarráðið ávísi á þennan sérstaka lið hjá ríkisféhirði sem ber nafnið „væntanleg fjáraukalög“. Hinsvegar er mikið ósamræmi í þessu starfi stjórnarráðsins og ósjaldan af handahófi, hverjum upphæðum er ávísaði þennan lið, hin væntanlegu fjáraukalög, því að hér er engu síður um að ræða þær upphæðir, sem ætlað er fyrir í fjárl., en þær upphæðir, sem hægt er að segja, að engin áætlun sé fyrir. Vafalaust væri réttast að ávísa á þennan lið öllum þeim upphæðum, sem greiddar eru umfram áætlanir fjárl., en ég býst við, að erfitt muni reynast að koma því skipulagi á, af ýmsum ástæðum, sem ég hirði ekki að rekja hér, og virðist mér því sem rétt sé að taka aðra leið og hætta öllum ávísunum á þennan lið, en ávísa í staðinn á þær gr. frv., sem færslan endanlega á að koma á. Það er tekið fram um allar færslur, undir hvaða gr. landsreikningsins þær heyra, og ætti að vera tiltölulega auðvelt, þegar ávísað er á ríkisféhirði, að ákveða, á hvaða gr. landsreiknings ávísað er og á hvaða lið hans. Sé ég þessu ekkert til fyrirstöðu, en niðurstaðan yrði að vísu sú, að upphæðirnar á því endanlega fjáraukalagafrv. yrðu hærri en með því fyrirkomulagi, sem nú er um þetta, en við þetta ynnist hinsvegar það, að skyldar greiðslur yrðu allar á einum stað og þar, sem þær eiga heima, og verður þannig þægilegra og aðgengilegra að fá yfirlit yfir landsreikninginn aneð þessu móti. Nú verður að leita að sömu greiðslunum í mörgum gr. landsreikningsins, til þess að fá yfirlit yfir heildarupphæðina, auk þess sem leita verður í 25. gr., sem hefir að geyma greiðslur samkv. sérstökum lögum, þingsályktunum, fjáraukalögum fyrir það árið og loks væntanlegum fjáraukalögum, sem eru eftirbreytur eða greiðslur, sem ekki voru enn komnar fram, er sjálf fjáraukalögin voru samþ. Ef n. hefði þannig ekki komið með þessar brtt. við frv. nú, hefði þetta komið á landsreikninginn 1931 undir fyrirsögninni: væntanleg fjáraukalög. Þetta fyrirkomulag er að vísu ekki nýtt, en hefir vaxið um langan tíma, en þessu þarf að breyta, og vildi ég beina því til hæstv. fjmrh., að hann reyndi að finna eitthvert betra form fyrir þetta en þetta handahófsform er. — Eins og ég áður sagði, hefir þetta gilt um langan tíma, og er þannig í fjáraukal. ársins 1926 hærri upphæð til sendiherrans í Khöfn en í LR. sjálfum það ár (7. gr.). Sýnist þó ekkert hafa átt að geta verið því til fyrirstöðu, að viðbótargreiðslan til sendiherrans væri færð á þá gr. LR., sen: hún að réttu lagi átti að vera, enda þótt upphæðin yrði hærri en búizt var við, þegar fjárl. fyrir það ár voru samin, af því að ekki var vitað, að starf sendiherrans yrði með öðrum hætti en það var árið áður. Er mjög óheppilegt að höggva þetta þannig í sundur, og þeir, sem eru óvanir landsreikningnum, eiga erfitt með og er enda illkleift að átta sig á því, hvað þetta og hitt hefir kostað. Það ætti því að vera áhugamál allra, að LR. sé svo úr garði gerður, að auðvelt sé að átta sig á því, hvernig starfsemi ríkisins hefir gengið í einstökum atriðum og í heild sinni.
Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta. Ætla ég, að það sé nokkurn veginn upplýst um þær greiðslur, sem fram hafa farið, að ekki hafi verið gott að komast hjá þeim sumum hverjum, en aftur eru aðrar vafasamari, t. d þær upphæðir, sem ég drap á, að n. ætlaðist ekki til, að yrðu greiddar framvegis, eins og greiðslurnar fyrir gerð innflutningsskýrslna og til kaupa á skrifstofuáhöldum handa gjaldheimtumönnum ríkisins. Um aðra liði má segja, að sé meira álitamál, hvort þeir eigi að greiðast úr ríkissjóði, t. d. 1. liður 3. gr. Þar hefir að vísu verið talið sjálfsagt að greiða embættismanni laun hans, þó að hann af einhverjum ástæðum hafi forfallazt frá að gegna embætti sínu, en það sýnist óneitanlega nokkuð langt gengið, þegar hlutaðeiganda líka er greitt fyrir aukastarf, sem hann hefir ekki leyst af höndum, þó að um hitt megi margt til færa, bæði með og móti. Segi ég þetta ekki í umboði n., en sjálfum sýnist mér sem farið sé á fremsta hlunn um greiðslur úr ríkissjóði í tilfellum sem þessum.
Ég býst ekki við að taka aftur til máls í þessu mái, nema ef æskt skyldi verða eftir sérstökum upplýsingum við einstaka liði frv., eða fram koma sérstakar aths., sem ég tel nauðsyn að svara. Ég geri ráð fyrir því, að d. samþ. till. n. og frv. sjálft, því að ef þessar greiðslur verða ekki samþ. nú, hefir það ekki aðra þýðingu en þá, að þær koma á LR. sjálfum undir liðnum: væntanleg fjáraukalög. En ég get bætt því við, að ríkisbókhaldið hefir tilkynnt, að ef frv. verði samþ. nú, muni engin slík væntanleg fjáraukalög verða að ári.