03.05.1932
Neðri deild: 66. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 590 í B-deild Alþingistíðinda. (217)
297. mál, fjáraukalög 1931
Magnús Guðmundsson:
Við hv. þm. Borgf. höfum skrifað undir nál. með fyrirvara, og lýtur hann að nokkrum liðum frv. Skal ég í stuttu máli drepa á þessa liði, en get þó um ýmsa þeirra vísað til þess, sem hv. frsm. sagði, sérstaklega um þá liðina, sem hann gat um, að n. ætlaðist til að féllu niður í framtíðinni.
Ég vil byrja með því að árétta það, sem hv. frsm. sagði um 1. lið 3. gr. Samkv. launalögunum eiga þeir, sem gegna störfum annars embættismanns í sjúkdómsforföllum hans, ekki að fá sérstaka borgun fyrir. Hér stóð einmitt svo á, og hefði því verið hægt að spara þessar 1000 kr.
Þá þykir okkur byggingarkostnaðurinn á Bakkaseli vera orðinn allmikill, þar sem hann er orðinn helmingi hærri en Alþingi ætlaðist til. Alþingi veitti 1000 kr. til þessara bygginga, en hér er farið fram á 19000 kr. aukafjárveitingu vegna þeirra, og sýnist slíkt ekki vera að fara að vilja þingsins.
Þá hefir og póst- og símahúsið á Selfossi orðið alldýrt. Hafa áður verið veittar 30000 kr. til þess, og nú er farið fram á ca. 6500 kr. í viðbót.
Kirkjugarðurinn hér í Reykjavík er og orðinn dýr, og eru þó ekki öll kurl komin til grafar enn í því efni, en vegna þess að ég minnist ekki, að nein upphæð hafi verið áætluð í þessu skyni í fjárlagafrv., vildi ég leyfa mér að beina því til hæstv. fjmrh., hvort ætlazt sé til þess, að verkinu verði lokið á yfirstandandi ári, því að það er vitanlegt, að leggja verður í mikinn kostnað enn vegna kirkjugarðsins, áður en hægt verður að fara að grafa í honum.
Til hlöðubyggingarinnar á Hvanneyri hafa áður verið greiddar um 130000 kr., og með þeim 5300 kr., sem hér er farið fram á til hennar, sýnist mælirinn vera fullur, og er þess því að vænta, að hér sé um lokagreiðslu að ræða, en til frekari fullvissu vil ég spyrja hæstv. fjmrh., hvort svo sé ekki.
Í 8. gr. er færður kostnaður vegna byggingar á rafstöð á Reykjum í Ölfusi, 9893,77 kr. Hygg ég, að þetta muni ekki allur kostnaðurinn, sem hlotizt hefir af þessari rafstöðvarbyggingu. A. m. k. hefi ég séð það í blaðagrein eftir einn af stjórnarmeðlimum Mjólkurbús Ölfusinga, að mjólkurbúið hafi greitt helming kostnaðarins við rafstöðvarbygginguna, og hafi það orðið um 16000 kr. Geri ég mér því í hugarlund, að þetta muni vera fært einhversstaðar annarsstaðar líka. En hvar? Um það get ég látið mér detta í hug, að hinn hluti byggingarkostnaðarins sé færður á landsspítalann, því að við endurskoðun LR. fyrir árið 1930 rákumst við á um 50000 kr. tilheyrandi Reykjahæli, sem fært var á landsspítalann. Er það mjög óheppilegt að rugla svo á milli stofnana, og þó sérstaklega að sníða svo sundur kostnaðinn við sama mannvirkið, og get ég um þetta tekið undir það, sem hv. frsm. sagði.
Í 5. gr. eru færður vegna snjóbílanna, og er sýnilegt, að þetta er ekki nema lítill hl. af öllum rekstrarkostnaðinum. Veit ég ekki, hvar þessi kostnaður er færður 1931, en 1930 er borgað hér um bil 50000 kr. vegna snjóbílanna og yfirfært til ársins 1931, án þess að ég viti, á hvaða lið þetta er fært. Sýnist engin meining vera í því að vera að flytja svo á milli ara, enda sízt í samrræmi við ályktun þá, sem gerð var hér á þinginu í fyrra í þessu efni, en verst er þó, að þessi upphæð skuli vera slitin sundur og færð hingað og þangað. Hefir n. litið yfir reikninga snjóbílanna, sem vegamálastjóri hefir samið, og ná þeir til vorsins 1931, svo að þar við bætist kostnaðurinn síðara hl. ársins 1931 eða fyrri part síðastl. vetrar. Er þessi kostnaður gífurlegur. Allur kostnaðurinn við snjóbílana mun nema yfir 100000 kr., og er innkaupsverð þeirra um 80000 kr. af þeirri upphæð. Voru keyptir fjórir snjóbílar, og hefir miklu fé verið varið til viðgerðar á heim og til að kaupa í þá varahluti. Tekjurnar af snjóbílunum hafa hinsvegar ekki numið nema 15700 kr., og skiptast þær svo, að eftir tvo bílana á Hellisheiði hafa komið 9600 kr., bílinn á Holtavörðuheiði 3600 kr. og Fagradalsbrautarbílinn 2500 kr., og eru þó flutningsgjöldin með þeim fjórum sinnum hærri en með venjulegum bílum. Samkv. reikningunum hefir rekstrarhallinn orðið um 43700 kr., og er auðsætt, að þær 6000 kr., sem taldar eru í þessu frv., eru ekki nema lítill hl. af öllum rekstrarkostnaðinum. Í rekstrarhallanum hefir verið tekið með 15%, fyrning á bílunum, en ég hygg, að þó sé allt of lagt reiknað, því að það hefir sýnt sig, að bílarnir eru of veikir til að þol. Þá flutninga, sem þeir eru lagðir í, því að þeir eru alltaf að bíla. Er auðsætt, að ekki er nema tiltölulega lítil bót að því að hafa þessa bíla. Bæði er það, að þeir anna ekki flutningunum, enda yrðu þeir allt of dýrir, ef bílarnir ættu að bera sig, enda þótt ríkissjóður legði þá til fyrir ekkert. Einn bíllinn er og hættur ferðum, bílinn á Fagradalsbrautinni. Átti að setja upp flutningsgjaldið með honum. en héraðsbúar sögðu, að engir flutningar myndu þá fást með honum. Hvað svo hefir verið gert við hann, veit ég ekki. En vegamálastjóri segir í aths. sínum út af reikningnum, að snjóbílar séu, sér vitanlega, hvergi notaðir til fólks- og vöruflutninga, nema á Íslandi. Hann segir að Norðmenn hafa keypt einn slíkan bíl 1930, en reynslan hafi orðið sú, að það hafi ekki verið talið fært að nota hann þar. Nú hefi ég heyrt sagt, að búið sé að finna upp sérstakan útbúnað á venjulegar bifreiðar til þess að þær geti farið yfir snjó. En ég hygg, að það muni ekki vera komin nægjanleg reynsla á þetta, svo það er ekki hægt að segja, hvort það muni koma að notum hér. En takist það, að nota þennan útbúnað hér á landi, þá er það auðséð, að þær 100 þús. kr. eða rúmlega það, sem hér er um að ræða, hafa farið fyrir lítið eða ekki neitt í þessar tilraunir. Enda var nú satt að segja alltaf gengið út frá því í byrjun, af þeim, sem vit höfðu á, að þessi tilraun væri hæpin, og ég man, að í deilum um það var því haldið fram í lofgrein um þessa snjóbíla, að það væri þrögsýni hjá þeim, sem væru að halda því fram, að snjóbílar gætu ekki leyst samgöngumál okkar yfir fjallvegi að vetrinum. Nú er það komið á daginn, að þeir geta það ekki, a. m. k. ekki snjóbílar af þessari gerð. Þvert á móti er það bert, að þessum mikla kostnaði við þá hefði sannarlega verið á ýmsan annan hátt betur varið.
Ég mun svo bíða eftir svörum hæstv. fjmrh. áður en ég geri frekari aths.