09.03.1932
Neðri deild: 24. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1973 í B-deild Alþingistíðinda. (2208)
65. mál, raforkuvirki
Flm. (Jónas Þorbergsson):
Þetta frv., sem er á þskj. 65, er borið fram af okkur hv. þm. Ísaf. og hefir legið fyrir tveim síðastl. þingum, en ekki hlotið samþykki þingsins. Nú er frv. enn borið fram nokkuð breytt og aukið, í samráði við og að tilhlutun þriggja manna, þeirra Steingríms Jónssonar rafmagnsstjóra, verkfræðings útvarpsins, Gunnl. Briems, og ungs rafmagnsverkfræðings, Jakobs Gíslasonar, sem hefir haft á hendi eftirlit með raforkuvirkjum samkv. ráðstöfun ríkisstj.
Frv. er borið fram vegna þess, að þessir menn líta svo á, að í núg. löggjöf vanti nógu sterkan grundvöll, sem hægt væri að byggja þær ráðstafanir á, sem gera þarf til þess að tryggja nógu sterkt eftirlit með uppsetningu og notkun raftækja í landinu.
Aðalbreyt., sem frv. fer fram á, eru þrjár. Í fyrsta lagi sú, að skapa aðstöðu fyrir sveitar- og bæjarfélög til íhlutunar um raforkuverð, þar sem einstaklingar eða félög hafa fengið leyfi til þess að stofnsetja og starfrækja raforkuver og raforkuveitur til almenningsþarfa. Í öðru lagi að skapa sveitar- og bæjarfélögum aðstöðu til þess að taka í sínar hendur einkasölu rafmagnstækja og annara hluta raforkuvirkja í umdæmi sínu, þar sem svo stendur á, að sveitar- eða bæjarstjórn hefir sjálf stofnsett raforkuver og starfrækir það. Þýðingarmesta breyt. er sú, að skapa með nákvæmri reglugerð, eins og frv. fer fram á, grundvöll undir varnir gegn tjóni, slysum og truflunum á viðtöku útvarps og loftskeyta, sem stafar af ófullkomnum útbúnaði rafmagnstækja. Hætta sú, sem getur stafað af vanhöldum á þessum tækjum, er aðallega þrennskonar. Það er lífshætta fyrir þá menn, sem gæta þeirra, eldsvoðahætta, og svo hinar illræmdu truflanir, sem koma fram við móttöku útvarps og loftskeyta. Þriðja breyt. er sú, að hlutast skuli til um það, að koma á reglubundnu eftirliti með hagnýtingu raforku, til þess aðallega að koma í veg fyrir það tjón og þær truflanir, sem þegar hefir verið minnzt á.
Undanfarin þing hafa ekki séð sér fært að gefa þessu máli gaum, og er það líklega af því, að hv. þm. hafi ekki skilið nauðsyn þessa máls. Ég ætla því að verja nokkrurn tíma til þess að gera sem ljósasta grein fyrir þessu nauðsynjamáli.
Á þinginu 1929 kom upp heilmikill áhugi fyrir raforkuveitum utan kaupstaða, og út af umr. um það mál voru gerðar ýmsar ráðstafanir til fyrirgreiðslu þess. Í ársbyrjun 1930 var svo skipuð þriggja manna „raforkumálanefnd“, og voru í henni vegamálastjóri, rafmagnsstjóri og Jakob Gíslason. Þessi n. skyldi gera till. um raforkuveitur utan kaupstaða, en til þess höfðu verið veittar 15 þús. kr. í fjárl. fyrir árið 1930. N. þessi skilaði bráðabirgðaáliti á þinginu 1930 og lagði til, að ráðh. notaði heimild þá, sem þegar var til í lögum um eftirlit með raforkuveitum utan kaupstaða. Samkv. ósk n. var Jakob Gíslason skipaður af ráðuneytinu til þess að hafa þetta sérstaka eftirlit með höndum, og segir svo í erindisbréfi hans, með leyfi hæstv. forseta:
„Ráðuneytið hefir falið Jakobi Gíslasyni rafmagnsfræðing að safna skýrslum um gerð, tilhögun og rekstur raforkuvirkja víðsvegar um land. Ennfremur eftirlit með frágangi raforkuvirkja og rekstri, svo og öllum raflögnum, utan húss og innan. Skal því með skírskotun til 5. gr. 1. nr. 7, 15. júní 1926, um raforkuvirki, og til bráðabirgðareglugerðar um eftirlit með raforkuvirkjum frá 18. júní 1930 lagt fyrir alla hlutaðeigendur að veita téðum eftirlitsmanni greiðlega allar upplýsingar í þessum málum, er hann beiðist, svo og hlíta ráðum hans og fyrirskipunum um nauðsynlegar bætur til þess að umbúnaður verði allur öruggur og lögum samkvæmur“.
Eins og hv. dm. sjá, er samkv. þessu erindisbréfi ætlazt til þess, að á komist fullkomið eftirlit með raforkuveitunum úti um land, en árangurinn hefir ekki orðið sem skyldi, vegna þess að þingið hefir ekki ennþá lagt fram nægilegt fé til þess að koma máli þessu í gott horf. Samt hefir Jakob Gíslason starfað talsvert að þessu, farið tvær eftirlitsferðir og safnað skýrslum um raforkuveitur úti um land og ástand þeirra, og ætla ég í fáum orðum að skýra frá aðalniðurstöðum hans. Honum telst svo til, að á Íslandi séu 33 raforkuveitur, og helmingur allra landsbúa búi við raforku að meira eða minna leyti. Það ætti að vera nægilegt til þess að sannfæra hv. þdm. um það, hvað þetta er orðinn stór liður í öllu þjóðlífi Íslendinga, sem Alþingi verður að gefa svipaðan gaum hér eins og gert er í öðrum löndum.
Skýrslur og athuganir Jakobs Gíslasonar um þetta mál sýna mjög greinilega, að ástandi raforkuveitna og kunnáttu þeirra manna, sem gæta þeirra, er mjög ábótavant. Flestar rafveitur hér á landi eru litlar og illa stæðar, veita yfirleitt rafmagn eingöngu til lýsingar og víða ónógt. Þær bera sig illa fjárhagslega, og hvorki þær né eigendur raflagna og raftækja geta kostað til vandaðra raforkuvirkja né til kostnaðarsamrar gæzlu og viðhalds á þeim meðan gagnsemi þeirra er svo lítil. En um kunnáttu gæzlumanna farast Jakobi Gíslasyni þannig orð í bréfi til ráðuneytisins, með leyfi hæstv. forseta:
„Stöðvarstjórar gátu eigi sent fullnægjandi skýrslur til rafmagnseftirlitsins, þeir höfðu engar dagbækur haldið í orkuveri og kunnu ekki þá dagbókarfærslu. Flestir þeirra þekktu engar reglur um rafmagnslagningu, og margir þeirra höfðu engan einangrunarmæli eða kunnu alls ekki með það áhald að fara, en an þess er fullnyt gæzla á rafmagnslögnum litt hugsanleg. Suma rafstöðvarstjóra skorti þekkingu á nauðsynlegustu atriðum rafmagnsfræðinnar, svo sem að þekkja mælieiningar hennar og einföldustu mælingaraðferðir. Loks er þess að geta, að við margar kauptúnaveitur er enginn starfsmaður, sem kann að leita að upptökum truflana á viðtöku útvarps og að deyfa slíkar truflanir, en þær eru nú orðnar slík plaga, að ekki verður við unað til lengdar“.
Þannig farast Jakobi Gíslasyni orð í þessu bréfi. Og þetta ástand er þannig, að á því verður að ráða bót. Raforkuveitur hafa á síðasta aratug, frá 1920–30, þrefaldazt hér á landi og hestaflatala orkunuar tífaldazt. Með þessum öra vexti og ekki betra ástandi er sýnilegt, að eldsvoðahætta af völdum rafmagns fer mjög vaxandi. Ég skal nú í fáum orðum gefa yfirlit yfir það brunatjón, sem orðið hefir síðustu 10 arin af ófullkomnum umbúnaði raflagna. frá 1920–1930 hafa 29 brunar orðið út frá raflögnum og 19 frá raftækjum, og tjónið er metið samtals 146477 kr. Ef svo er bætt við brunanum á Ísafirði 1930, sem að öllum líkindum hefir verið af völdum rafmagns, vex upphæðin ekki svo lítið, því að tjónið af þeim eina bruna var metið á 40 þús. kr. Sest af þessu, að brunatjón af þessum orsökum hefir farið sívaxandi. Stafar þetta vitanlega mestmegnis af illum umbúnaði og ófullnægjandi eftirliti. Hér er ennþá enginn skóli fyrir raffræðinga. Með lögum frá 1930 um vélstjóraskólann var svo ákveðið, að þar yrði kennd rafmagnsfræði. Þetta hefir þó ekki enn komið til framkvæmda. Var þó farið fram á að fá fé til námskeiðs 1931, en það fékkst ekki. Ef Alþ. vill nú veita nokkurt fé til kennslu í rafmagnsfræðum, er ætlazt til, að kennsla í rafmagnsdeild fari fram í sambandi við vélstjóraskólann.
Ég vil nú í stuttu máli taka fram, hvað helzt skortir á gott lag í þessum efnum. Fyrst og fremst þarf að setja lög og reglur um raforkuver og raftæki. Í öðru lagi þarf að koma á fullkomnara eftirliti en hingað til, og í þriðja lagi að setja á fót rafmagnsdeild við vélstjóraskólann.
Ég vil að lokum minnast lítið eitt á útvarpstruflanirnar, sem svo mjög hefir verið kvartað um. Truflanir þessar stafa af því, að raflagnir og raftæki eru svo gerð, að neistar hrökkva á milli og mynda sveiflur, sem verka á víðtækin í mismunandi fjarlægð eftir styrkleika þeirra. Við Íslendingar, sem búum í mikilli fjarlægð frá sterkum stöðvum, fáum mest að kenna á þessu, og af þessum orsökum þurfum við að ganga lengra en aðrar þjóðir í því að deyfa þessar truflanir.
Kvartanir úr öllum hlutum landsins streyma stöðugt til útvarpsins út af truflunum. 1930 var sett reglugerð, byggð á lögum frá 1929, og veittar 10 þús. kr. til að framkvæma deyfingar. Að tilhlutum útvarpsins voru síðan gerðar ráðstafanir í þessa átt og deyfðar 138 vélar og raftæki hjá 100 mönnum og stofnunum. Þetta var þó hvergi nærri fullnægjandi, af því að vald og eftirlit skorti til að gera fullkomna gangskör að deyfingunum. Það liggur í augum uppi, að þýðingarlítið er að taka tæki manna með valdi og heimta borgun fyrir, meðan ekkert eftirlit er með innflutningi tækja. Úr þessu þarf að bæta með því að sameina þetta eftirlit hinu almenna eftirliti ríkisins með rafmagnstækjum og veita það vald og setja þær reglur, sem nauðsynlegar eru.
Rafmagnsstjóri Rvíkur hefir verið í ráðum um samningu þessa frv. og hefir heitið aðstoð sinni og samvinnu við ríkið til að vinna bug á útvarpstruflunum og stuðla að þessu eftirliti.
Ég vænti þess, að hv. d. veiti máli þessu góðar viðtökur og æski, að því verði að lokinni umr. vísað til allshn.