03.05.1932
Neðri deild: 66. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 602 í B-deild Alþingistíðinda. (222)
297. mál, fjáraukalög 1931
Magnús Guðmundsson:
Hv. frsm. hélt, að það væri villandi, sem ég sagði, að ekki væri hægt að skipta þessum greiðslum samkv. frv. niður á einstakar gr. LR. Hann sagði, að þetta væri gert nú í rekstrarreikningi. Ég skal ekki deila við hann um þetta, því að ég held, að við séum að mestu leyti sammála. Hitt held ég fast við, að þótt upphæð sé greidd eftir fjáraukalögum, þá er í rekstrarreikningi vel hægt að færa upphæðina á þeim lið LR., sem hún að réttu lagi á við.
Hv. frsm. minntist á fjáraukal. fyrir 1920 og 1921. Ég skal ekki ræða um þau nú, en síðar, þegar fjáraukal. 1930 koma til meðferðar, skal ég syna fram á, að þau eru hærri fyrir aðeins eitt ár en tilsvarandi fjáraukalög voru bæði árin 1920 og 1921.
Um rekstur snjóbílanna skal ég ekki tala frekar. Hv. frsm. kvaðst vera ánægður yfir þessum kostnaði. Ég skal ekkert annað gera nú en vísa til þess, sem ég sagði í fyrri ræðu minni. Hvort hægt væri að haga rekstri snjóbílanna á skynsamlegri hátt skal ég ekki dæma um, því er ég algerlega ókunnugur. En það er auðsætt, að varahlutir í þessar bifreiðar eru svo dýrir, að það er með öllu óhæfilegt. Vegamalastjóri segist hafa reynt að fá verksmiðjuna til að slá af hinu mikla verði á þessum hlutum. En hver árangurinn hefir verið, veit ég ekki. Hvort viðhaldskostnaðurinn á þeirri bifreið, sem gekk yfir Holtavörðuheiði, hefir verið minni en annarsstaðar, veit ég ekki, því það var ekki sundurliðað í skýrslu vegamálastjóra. En ég hefi það fyrir satt, að sú bifreið hafi dugað bezt.