30.03.1932
Efri deild: 38. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1985 í B-deild Alþingistíðinda. (2233)
62. mál, kirkjugarðar
Einar Árnason:
Frv. þetta er stór bálkur, milli 40 og 50 greinar. Ég hefi skrifað undir nál. með fyrirvara, en sá fyrirvari liggur í því, að ég tel mig ekki hafa, vegna tímaskorts, haft nægileg tók á að gera mér grein fyrir öllum ákvæðum frv. eins og skyldi.
Í frv. eru nokkur fyrirmæli um kirkjugarða og viðhald þeirra, og virðist svo sem sóknarnefndir og hreppsnefndir verði allmjög af þeim bundnar, og ég hefi tekið eftir því, að eftir frv. þessu verður meiri kostnaður við kirkjugarða og greftrun manna en verið hefir áður. Ég held þó, að meiri ástæða hefði verið til þess að gera ráðstafanir í þá átt, að greftranir verði ekki eins kostnaðarsamar eins og þær eru nú orðnar, einkum í sumum kaupstöðunum.
Í 3. gr. frv. er blandað saman verksviði sóknarnefnda og hreppsnefnda að því er snertir þessi mál. Þannig getur sóknarnefnd t. d. gert dýrar ráðstafanir viðvíkjandi kirkjugörðum og látið hreppsfélögin svo borga. Þá geta sóknarnefndir einnig velt af sér innheimtu kirkjugarðsgjaldsins, sem hingað til hefir hvílt á þeim, yfir á herðar innheimtumanna ríkissjóðs í kaupstöðum, en oddvita í sveitum. Hafa oddvitarnir a. m. k. þó nægilega mikla erfiðleika við að stríða með innheimtu hreppsgjalda, þó ekki sé verið að bæta á þá sérstakri innheimtu fyrir sóknarnefndirnar. Þá er og gert ráð fyrir, að sóknarnefndir geti heimtað af sveitarfélögum kostnað við framræslu, vegagerðir o. fl. viðvíkjandi kirkjugörðum. En þetta getur komið mjög órétt niður þar sem einn hreppur er t. d. 2–3 kirkjusóknir. Einn söfnuðurinn getur t. d. lagt í ýmiskonar kostnað við kirkjugarð sinn og dembt honum svo á allan hreppinn í heild sinni, enda þótt hinir söfnuðirnir hafi engu kostað til kirkjugarða sinna eða hafi lokið því áður en lög þessi koma í gildi.
Í 5. gr. er það gert að skyldu að hafa klukku á sáluhliði, ef kirkjugarðurinn liggur ekki við kirkjuna. Við þetta er það fyrst og fremst að athuga, að það getur alltaf verið álitamál, hvenær kirkjugarður liggi í þessari fjarlægð frá kirkju, að ástæða sé til þess að heimta þetta, og í öðru lagi getur þetta bakað söfnuðunum töluverðan kostnað. En klukkuna tel ég hreinan og beinan hégóma.
Þá eru í 15. gr. frv. ákvæði um það, að skógræktarstjórn landsins, sem ekki getur verið annað en skógræktarstjóri, skuli skylt að láta sóknarnefndum í té trjáplöntur til gróðursetningar meðfram girðingum kirkjugarða og meðfram gangstígum innan garðs. Þetta álít ég að geti orðið erfitt, ef eftirspurn eftir trjáplöntunum yrði mikil, því ég veit ekki til, að skógræktarstjóri hafi mikið af þeim umfram það, sem hann notar árlega. Sama kvöðin er lögð á ræktunarstöðvar, sem styrktar eru af almannafé. Gæti því svo farið, að það yrðu nokkur útgjöld fyrir þær.
Einn kafli frv. fjallar um heimagrafreiti. Hvort það er heppilegt að fjölga þeim mjög mikið, skal ég ekkert um segja, en ég set mig ekki á móti þeim, og úr því á að leyfa þá, tel ég alveg sjálfsagt, að fátækum jafnt sem ríkum sé gert kleift að fá þá, en svo virðist ekki eftir ákvæðum frv.; samkv. þeim eru það aðeins þeir efnameiri, er geta fengið þá, vegna þess hve hátt gjald er lagt á þá eftir frv. Ég býst því við að fylgja brtt. hæstv. dómsmrh. um að lækka gjald til þeirra úr 600 kr. niður í 200 kr.
Eins og ég tók fram í upphafi máls míns, lét ég frv. fara frá n. með því að skrifa undir það með fyrirvara, en ég er ekki ennþá endanlega ákveðinn í því, hvort ég get fylgt því út úr deildinni.