20.05.1932
Neðri deild: 79. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2007 í B-deild Alþingistíðinda. (2258)

62. mál, kirkjugarðar

Lárus Helgason:

Ég vildi aðeins segja fáein orð um brtt. á þskj. 777. Mér skildist, að hv. 2. þm. Rang. væri þeim yfirleitt andvígur, og taldi hann ekki ástæðu til að ýta undir menn til þess að koma upp heimagrafreitum. Ég er algerlega á annari skoðun og álít ekki rétt að gera einstökum mönnum erfitt fyrir um það. Eins og kunnugt er, þá búa menn vítt og dreift um landið, og frá ýmsum bæjum er langt á kirkjustað, og ég tel enga nauðsyn til þess að rígbinda það, að lík séu flutt langa leið til grafar, hvernig sem færð og veður eru. Ég held það sé alveg rétt að gefa þeim, sem vilja, kost á að koma á hjá sér heimagrafreitum án afarkosta. Og mér finnst það ákvæði frv. að ætla einstökum mönnum að greiða 600 kr. í sjóð, auk alls kostnaðar við að koma upp grafreitnum, óhæfilega miklar og óþarfar hömlur. Ég sé ekki betur en að það sé alveg rétt hjá hv. 1. þm. S.-M. og hv. 1. þm. Skagf., að 150 kr. framlag sé nóg til viðhalds grafreitnum til að byrja með. Þó að það kunni að koma fyrir, að hlutaðeigandi jörð fari í eyði eftir nokkurt árabil frá því að þar var settur grafreitur, eða að þeir, sem á jörðinni búa, hirði ekki um að nota hann, þá hygg ég, að það sé ekki mikill skaði skeður, þó að viðhaldið verði lítið. Þegar kirkjur eru fluttar, hefir lítið verið hirt um grafreiti á þeim stöðum, þar sem þær eru lagðar niður. Árið 1899 var kirkja flutt frá Prestsbakka að Kirkjubæjarklaustri, og ég veit ekki til, að þar hafi verið haldið við grafreitnum né sléttað yfir hann. Ég tel því óþarft, að löggjöfin sé að setja sérstaklega ströng skilyrði um viðhald á heimagrafreitum, og að verið sé að straffa menn fyrir að flytja ekki lík til kirkjugarða. Ég held, að það fari eins vel á því, að hreppstjóri eða 2 skilríkir menn gefi vottorð um val á grafreitnum, og að það geti fleiri gert en prófastar og læknar, því að vitanlega hafa þeir ekki betur vit á því eða meiri skilyrði en aðrir til þess að velja slíka staði, og ekkert sérstaklega um það lesið. Ég lít svo á, að það hafi ekkert að þýða að sækja prófast eða lækni langa leið til þeirra hluta. Það er alveg rétt hjá hv 1. þm. S.-M., að það þarf ekki að valda neinum kostnaði, þó að hreppstjóri eða 2 skilríkir menn innansveitar skoði þá staði, sem valdir verða fyrir heimagrafreiti.

Ég vil svo aðeins mæla með því, að hv. þd. fallist á þessar brtt., því að ég álít þær vera mjög til bóta.