24.05.1932
Neðri deild: 82. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2030 í B-deild Alþingistíðinda. (2288)
364. mál, útflutningur á nýjum fiski
Frsm. (Sveinn Ólafsson):
Þetta frv. hefir tekið talsverðum breyt. í hv. Ed., en með því að allar líkur benda til þess, að frekari breyt. á frv. í þessari d. mundu geta leitt til þess, að það fjaraði uppi, hefir sjútvn. þessarar d. tekið þá ákvörðun að leggja til, að frv. verði samþ. eins og það liggur fyrir. Þar sem þetta mál hinsvegar er þrautrætt hér í d., sé ég ekki ástæðu til að fara að reifa það frekar hér af nýju.