09.05.1932
Neðri deild: 70. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2032 í B-deild Alþingistíðinda. (2294)

466. mál, síldarbræðsluverksmiðja á Austurlandi

Frsm. (Jóhann Jósefsson):

Á þskj. 653 hefir sjútvn. gert grein fyrir afstöðu sinni til þessa máls.

Með frv. þessu er farið fram á, að ríkisstj. fái heimild til að veita erlendum manni eða félagi leyfi til að reisa síldarbræðslustöð á Seyðisfirði. N. getur ekki fallizt á að binda þessa heimild við Seyðisfjörð. Hinsvegar er n. ekki mótfallin því að veita stj. þessa heimild án þess að ákvarðað sé, hvar á Austfjörðum stöðin skuli reist.

Það er vitanlegt, að á síðari árum hefir síldin lagzt aftur upp að Austfjörðum, og er illt til þess að vita, að ekki skuli vera nein tök á að hagnýta sér þá veiði. Þess vegna getur n. eftir atvikum fallizt á, að leyft verði að reisa þar síldarbræðslu fyrir erlent fé. En n. leggur áherzlu á, að verksmiðjan kaupi síldina af ísl. skipum. Því gat n. ekki fallizt á niðurlagsorð frvgr., þar sem heimilað er að veita verksmiðjunni leyfi til að kaupa síld af erlendum skipum, að svo miklu leyti sem ekki er unnt að tryggja henni nægilegt síldarmagn frá innlendum skipum. N. virðist ekki nógu tryggilega um búið, til þess að ekki væri hægt að fara í kringum þetta ákvæði og ganga á snið við lögin. En það er einmitt aðalatriðið, að íslenzk skip fái selt verksmiðjunni afla sinn. Það er að vísu nokkurt atriði í málinu, sú vinna, sem verksmiðjan veitir í landi, en hitt er miklu stærra.

Síðan n. gaf út álit sitt hefir hv. flm. borið fram brtt. við frv., á þskj. 650. Þar er lagt til að heimila stj. að veita erlendum síldveiðiskipum leyfi til að landsetja og lata verka afla sinn innan lögsagnarumdæmis Seyðisfjarðarkaupstaðar árið 1932. N. í heild hefir ekki tekið afstöðu til þessarar till. Hún kemur hér eins og skrattinn úr sauðarleggnum. Frv. fjallar eingöngu um síldarbræslustöð á Seyðisfirði. Í brtt. er farið fram á að heimila stj. að gera ákvæði fiskveiðalaganna svo að segja að engu að því er Seyðisfjörð snertir. Ég veit ekki, hvað hv. meðnm. mínir í sjútvn. segja um þessa till., en mér fyrir mitt leyti finnst ómögulegt að ganga inn á þá braut að veita einstöku lögsagnarumdæmi undanþágu frá fiskveiðalögunum. Ef um einhverjar undanþágur á að ræða, þá mega þær ekki vera bundnar við eitt einstakt hérað. Hinsvegar tel ég varhugavert að fara út á þá braut, jafnvel þótt aðeins sé að ræða um eitt ár. Ég vildi mælast til þess, að hv. flm. taki brtt. þessa aftur til 3. umr., svo n. geti athugað hana.

En sem sagt, n. leggur til, að frv. sjálft verði samþ. með breyt. þeim, er hún leggur til á þskj. 653. Þar er frv. fært í það horf, að verksmiðjuna megi reisa hvar sem vera skyldi á Austfjörðum, og ákvæði gildandi laga um rétt erlendra veiðiskipa til að leggja afla sinn á land og selja hann hér eru ekki rýrð eða skert að neinu leyti. En mig minnir ekki betur en samkv. gildandi lögum sé heimilt að veita síldarbræðslum leyfi til að kaupa afla af erlendum skipum. Má því að sjálfsögðu veita þessari verksmiðju slíka leyfi, ef í nauðirnar rekur, og þarf ekki ákvæði þessa frv. til þess.

Ég vil geta þess, að n. hefir lagst að breyta fyrirsögn frv. í samræmi við till. sínar, ef samþ. verða, setja þar á Austurlandi í stað á Seyðisfirði. En það mun n. athuga fyrir 3. umr., ef till. hennar verða samþ.