09.05.1932
Neðri deild: 70. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2040 í B-deild Alþingistíðinda. (2298)

466. mál, síldarbræðsluverksmiðja á Austurlandi

Sveinn Ólafsson:

Hv. frsm. hefir haldið vel á þessu máli, og hefi ég því litlu við að bæta, en af því að ég er staðkunnugur á vettvangi, þykir mér rétt að gera nokkrar aths. í sambandi við málið.

Hv. frsm. benti réttilega á það, að með brtt. n. er þetta fært út á víðara svið en það hefir eftir frv., með því að opna möguleikana fyrir því, að þetta bræðslufyrirtæki geti, ef svo vill verkast, komizt upp annarsstaðar en á Seyðisfirði. Er ég sannfærður um það, að þetta er heppilegra, bæði vegna þess gagns, sem af þessu leiðir, og líka með tilliti til þess væntanlega útlendings, sem leggja vildi fram fé í þetta fyrirtæki. Það er þrengra svið fyrir samninga, ef miðað er við Seyðisfjörð einan, og verður sennilega ekki um jafnmargvísleg og góð kjör að ræða, ef þetta er bundið við þennan eina stað, eins og líklegt er, að verði, þegar um er að ræða marga staði, og má af þessum ástæðum telja meiri líkur til þess, að þetta fyrirtæki geti komizt upp, ef heimildin verður samþ. eins og hún yrði skv. till. n.

Hv. flm. sagði, að heppilegast mundi verða að hafa bræðsluna á Seyðisfirði, vegna síldveiðanna, og þó einkum vegna veiðanna við Langanes. Út af þessu vil ég leyfa mér að benda á það, að undanfarið hefir lítið verið veitt af síld norðan Seyðisfjarðar, en aðallega inni á fjörðunum sjálfum, milli annesja, og tiltölulega fáir leitað norður eftir. Af þeim stöðum, sem um er að ræða fyrir þessa væntanlegu síldarbræðslu, álít ég, að telja megi 4 nokkurn veginn jafngóða, en þessir staðir eru: Seyðisfjörður, Mjóifjörður, Norðfjörður og Reyðarfjörður, og reyndar ef til vill líka Fáskrúðsfjörður, sem liggur þó á suðurjaðri þessa svæðis, eins og Seyðisfjörður liggur nyrzt. Landfræðlega séð er ljóst, að Norðfjörður stendur bezt að vígi um veiðarnar, og önnur skilyrði fyrir rekstur síldarbræðslu eru har jafngóð og á Seyðisfirði. Hinsvegar liggur Seyðisfjörður ekki á miðju svæði, en meir til annarar hliðarinnar, og þess vegna áleit n. ekki rétt að einskorða fyrirtækið við Seyðisfjörð, en opna heldur möguleikana fyrir því, að væntanlegur verksmiðjueigandi geti sjálfur valið á milli staðanna og þannig ef svo vildi verkast — komizt að haldkvæmari samningum um kaup eða leigu á landi og lóð.

Hv. flm. taldi, að sérstaklega bæri að líta á það í þessu máli, hver nauðsyn væri að bæta úr hinu mikla atvinnuleysi á Seyðisfirði. Ég veit, að atvinnuleysið er mikið á Seyðisfirði, en það er þó líklega engu minna á Norðfirði, enda er Norðfjörður fólksfleiri, og vitaskuld er Seyðisfjörður ekki útilokaður í þessu sambandi skv. till. n., ef svo færi, að hinn væntanlegi bræðslustöðvareigandi kysi heldur að setjast þar að en á Norðfirði.

Hvað þá ástæðuna snertir, að þessi væntanlegi bræðslustöðvareigandi mundi bæta úr vöntun á salti og tunnum á þessu sumri, ef til kæmi, þá er því til að svara, að nú er talsvert til af þessum varningi fyrir, en auk þess hefi ég séð það auglýst í blöðunum, að síldareinkasalan hafi nógar birgðir af tómtunnum, sem hægt mundi að ná til, og ætla ég, að þær muni fást með eins aðgengilegum kjörum eins og þó að fengnar væru beint frá útlöndum gegnum selstöðumenn, sem hér settust að.

Ég skal svo ekki tefja tímann með því að hafa þessi orð fleiri, en vil aðeins að lokum lýsa yfir því, að brtt. n. eru sprottnar af velvild til málsins, og hefir hún komið fram með þær í þeirri von, að ef þær verða samþ., yrði takmarkið nær en verða mundi, ef frv. væri samþ. óbreytt eins og það kom frá hendi flm. Það er engu síður áhugamál n. en hv. flm., að þetta geti orðið að liði — sem fyrst og sem almennast.