11.05.1932
Neðri deild: 72. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2044 í B-deild Alþingistíðinda. (2303)

466. mál, síldarbræðsluverksmiðja á Austurlandi

Pétur Ottesen:

Ég vil mjög taka undir með hv. þm. Vestm. um þá hættu, sem af því stafar, ef þessi undanþága verður veitt. Það er að vísu svo, að það magn síldar, sem farið er fram á að gefa leyti fyrir, er ekki svo mikið, að það hafi áhrif á síldarverðið, en það er hitt, sem alvarlegra er, að með þessu er stigið fyrsta sporið til þess að opna fiskveiðalöggjöfina og rjúfa þá skjaldborg, sem hún hefir verið sjómönnum þessa lands. Það er vitanlegt, að þegar slíkt leyfi sem þetta væri veitt á einum stað, þá koma strax aðrar verstöðvar þessa lands og heimta samskonar undanþágur. (BSt: Slíkar beiðnir eru þegar komnar fram). Og það er eðlilegt, að þær kröfur verði öflugri frá hinum stærri síldarstöðvum, en þegar á annað borð er búið að opna þennan möguleika, þá verður gersamlega ómögulegt að neita einum, þegar öðrum er leyft. Alveg það sama gildir gagnvart þeim útlendingum, sem veiði stunda hér við land. Þegar einhverri þjóð hefir verið leyft að leggja hér upp síld, koma aðrir á eftir. Bæði Norðmönnum og Svíum er ljóst, þvílík hagsbót væri í því fyrir þá að mega leggja hér á land veiði sína. Þeir mundu áreiðanlega reyna að ganga á lagið, þegar þeir álíta, að við Íslendingar séum gengnir inn á þá braut að slaka til á fiskveiðalöggjöfinni. Þeir vita það vel, að þegar vel viðrar, geta þeir saltað utan landhelgi, en þegar illa viðrar, þá er sá atvinnuvegur þeirra beinlínis dauðadæmdur og ekki hægt að reka hann nema með bláberu tapi. Þess vegna er þeim mjög illa við þær takmarkanir, sem settar hafa verið hér á landi í þessu efni. Það takmark, sem þessar þjóðir eru að keppa að, er að afla sjálfar þeirrar síldar, sem þær þurfa að nota; með því eru þær að taka í eigin hendur þá framleiðslu, sem við höfum haft fyrir atvinnu, og afleiðingin yrði sú, að útiloka gersamlega Íslendinga frá þessum atvinnuvegi.

En nú er ekki einasta, að hetta gildi um síldveiðar útlendinga; samskonar kröfur munu áreiðanlega koma frá þeim útlendingum, sem stunda aðrar fiskveiðar hér við land. Það skiptir vitanlega afskaplega miklu máli fyrir þá að fá leyfi til að leggja hér upp afla sinn og losast við það að þurfa að sigla óraleið heim til sín með aflann, þegar skipin eru orðin hlaðin, og eyða til þess miklu af hinum dýrmæta veiðitíma, sem annars mætti nota til aukinnar fisköflunar. Um þessa tegund af fiskveiðum útlendinga er alveg sama að segja og um síldveiðina, að ef þeir fengju bætta aðstöðu, þá mundu þeir draga úr okkar höndum einnig þessa tegund veiðinnar og eyðileggja það öryggi, sem fiskveiðalöggjöfin veitir. Ég hygg, að við eigum að lata reynslu síðustu ára benda okkur á það, að vissast sé að halda fast við okkar rétt og gefa hvergi eftir, því það mundi áreiðanlega koma okkur í koll sjálfum síðar. Þess vegna verður ógerningur að ganga inn á þetta frv. Þó atvinnuhorfur á Seyðisfirði séu slæmar, þá er ekkert vit í því að fara út í þann háska að slaka til á þeim varnaðarráðstöfunum, sem felast í fiskveiðalöggjöfinni.