11.05.1932
Neðri deild: 72. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2046 í B-deild Alþingistíðinda. (2304)
466. mál, síldarbræðsluverksmiðja á Austurlandi
Haraldur Guðmundsson:
Ég vil benda á það í sambandi við þessar almennu hugleiðingar hv. þm. Borgf., sem ekkert koma þessu máli við, að hér er aðeins um það að ræða að veita undanþágu með lögum á einum stað fyrir aðeins eitt sumar, og það fyrir örlítið „kvantum“ af síld, sem öllum kemur saman um, að sé svo lítið, að það geti engin áhrif haft á verið síldar. Að komið geti fram kröfur frá Siglfirðingum eða öðrum síldveiðistöðvum hér á landi, og jafnvel frá útlendingum, vegna þessarar undanþágu, það er vitanlega ómögulegt að segja um, en það snertir ekkert þetta mál og eru algerlega hugleiðingar út í loftið. Þó Alþingi veiti Seyðfirðingum þetta leyfi vegna yfirvofandi báginda fólksins vegna atvinnuleysis, þá er ekki þar með veitt neitt leyfi fyrir aðra staði á landinu.
Hugleiðingar hv. þm. Borgf. út af rýmkun fiskveiðalaganna koma ekkert þessu máli við. Hér er aðeins farið fram eina litla undanþágu, sem á að veita einum ákveðnum stað fyrir ákveðinn stuttan tíma og af alveg sérstökum ástæðum.