13.05.1932
Efri deild: 74. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2052 í B-deild Alþingistíðinda. (2317)

466. mál, síldarbræðsluverksmiðja á Austurlandi

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórallsson):

Mér hefir skilizt svo, að hv. 4. landsk. hafi óskað eftir því, að ég léti uppi álit mitt á þessu máli. Út af þessu vil ég taka það fram, að þetta frv. er ekki borið fram að tilmælum atvmrn. né heldur hefir sjútvn. Nd. snúið sér til ráðuneytisins og borið frv. undir það, en ég get lýst yfir því, að ef sjútvn. þessarar d. óskar eftir, er ég reiðubúinn til að ræða málið við hana og afla allra þeirra upplýsinga henni til handa, sem völ er á. Ég er sammála um það, að hér sé um alvarlegt principmál að ræða, og mér þykir rétt að taka það fram, vegna fyrirspurnar, sem kom fram í Nd. undir umr. málsins þar, frá hv. þm. Seyðf., um það, hvort ég teldi stj. heimilt að veita slíka undanþágu eftir fiskveiðalöggjöfinni, og ef svo væri, hvort stj. þá mundi gefa slíka undanþágu, að mér kemur ekki til hugar að veita slíka undanþágu, enda þótt heimilt væri samkv. l., sem ég þó ekkert skal segja um, hvort er, meðan Alþingi á setu, nema í samráði við sjútvn. þingsins, ella mundi ég því aðeins gera slíkt, að það væri í fullu samráði við stj. landsmálaflokkanna.