12.05.1932
Neðri deild: 73. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2066 í B-deild Alþingistíðinda. (2347)
645. mál, lántaka fyrir ríkissjóð
Fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson) [óyfirl.]:
Það hefir komið fram brtt. við þetta frv. frá hv. 2. þm. Reykv., og er efni hennar í raun og veru tekið úr grg. frv. og ætlar tillögumaður að flytja það á þennan hátt inn í frv. sjálft. Af ráðnum huga setti ég þessa ákvörðun eða skýringu í grg. frv., um það, hvernig láninu skyldi varið, en ekki í frv. sjálft. Og ástæðan til Þess er sú, að erlendir bankar og peningavíxlarar gera kröfu til þess, að lántökuheimild ríkisstj. sé á engan hátt skilorðsbundir., heldur sérstakt og alveg óháð öðru efni eða ráðstöfunum.
Það hefir áður komið fyrir, að aftan við lántökuheimild fyrir stj. hafði þingið sett í lagagr. ákvarðanir um það, til hvers lánið skyldi notað. En þessi lántökuheimild þótti ekki fullnægjandi erlendis, svo að það varð að bera málið aftur fram á næsta þingi í öðru formi og fá það til að afgr. heimildina skilorðslaust og an fyrirmæla um, til hvers lánið skyldi notað.
Nú má að vísu segja, að hér sé um annað að ræða en áður, þegar talað var um ráðstöfun lánsfjárins hér innanlands, en samkv. þessari lánsheimild á að verja láninu til greiðslu skuldabréfa í enskum bönkum, þannig að það verður aðeins tilfærsla á milli banka í Englandi. En ég hygg samt sem áður, að viðkomandi lánveitendur óski eftir því, að þessi lánsheimild verði einnig algerlega skilorðslaus, og styðst ég í því efni við álit kunnugra manna, sem ég hefi átt tal við um það atriði. Í fyrra tilfellinu, sem ég hefi minnzt á til samanburðar, var stjórn þess sama forsrh., sem enn fer með völd, veitt sú lántökuheimild, er ég gat um, og þótti þáv. stjórnarandstæðingum, sem enn eru flestir þeir sömu, fulltryggilega um það búið, hvernig með lánið yrði farið, þó að þau skilyrði væru numin burt úr lánsheimildarlögunum. Ég vil því vænta þess, að þeir telji enn fulla tryggingu í fyrirmælum grg. þessa frv. um ráðstöfun lánsins, þó að þau séu ekki lögbundin, og treysti því, að eftir heim verði farið. Af þeim ástæðum sem ég nú hefi nefnt, óska ég eftir því, að þessi viðbótartill. verði ekki samþ., því að þá gæti svo farið, að stj. yrði að leggja þessa lánsheimild aftur fyrir næsta þing. Þó að lánsmöguleikar virðist eigi álitlegir erlendis á þessu ári, getur opnazt einhver leið, sem ekki er vert að sleppa, og þá er ekki á það hættandi að hafa ekki til fullkomna lánsheimild.