12.05.1932
Neðri deild: 73. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2070 í B-deild Alþingistíðinda. (2350)
645. mál, lántaka fyrir ríkissjóð
Einar Arnórsson:
Mér skilst, að gagnvart lánveitanda sé það ekki stórt atriði, þó þessi viðbót sé sett. Mér skilst, að hvort sem lántakandinn, fjármálaráðh. íslenzki, heitir Ásgeir Ásgeirsson eða eitthvað annað, verði að segja, til hvers á að nota lánið. Þeir, sem veita það, munu ávallt óska slíks. Og ég hygg einmitt, að það geri lánveitanda fúsari á að veita lánið, ef hann sér, að það er bundið í l. sjálfum, að því eigi að verja til að borga aðrar skuldir, sem eru okkur óhagstæðari. Okkur kemur saman um það, að lánið frá 1921 muni ekki vera mjög fljótinnleyst. En ég get þó ekki séð, að það kæmi að sök. Annaðhvort héldi lánveitandi láninu og annaðist innlausn bréfanna, eða þá að einhverjum öðrum yrði falið það, og þá með samþykki lánveitanda. Og þegar, eins og her, er um að ræða konverterað lán, þá yrði landið hvort sem er að hafa umboðsmann til að annast þetta fyrir sína hönd meðan á innlausn bréfanna stendur. Þetta getur varla farið fram með öðrum hætti. Og þegar lánveitanda er sagt, að láninu skuli svona varið, þá er líklegt, að hann vilji tryggja sér það á einhvern hátt, að svo sé gert. Ég býst því ekki við, að munurinn á framkvæmd lántökunnar verði mikil, hvort sem brtt. mín verður samþ. eða ekki. En það er vitanlegt, að fremur má deila um það, hvernig stj. er skyldug að verja láninu, þótt eitthvað standi um það í grg. frv. í sambandi við fjárl. hefir stundum orðið ágreiningur um það, hvort stj. væri skylt að fara eftir ummælum, sem komið hafa fram í nál. eða í umr. um einhverja ákveðna fjárveitingu, og svo kynni enn að veiða hér.