14.05.1932
Efri deild: 75. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2073 í B-deild Alþingistíðinda. (2364)

645. mál, lántaka fyrir ríkissjóð

Pétur Magnússon:

Ég vil ekki gera það að kappsmáli, hvort málinu er vísað í n. eða ekki, en þó tek ég undir með hæstv. fjmrh., að ég skil ekki, hvað málið á að gera í n. Frv. er svo stutt og málið svo óbrotið, að mér virðist hver þm. ætti að geta gert það upp við sjálfan sig, hvort hann getur léð frv. fylgi eða eigi. Með þessum orðum er ég hinsvegar ekki að taka neina afstöðu til málsins.