26.05.1932
Efri deild: 84. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2082 í B-deild Alþingistíðinda. (2379)
645. mál, lántaka fyrir ríkissjóð
Fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson) [óyfirl.]:
Ég gat um það við fyrri hl. þessarar umr., að ég mundi ekki sjálfur bera fram brtt. við brtt. hv. 1. landsk. og ætlaðist ekki til þess af þeim, sem frv. geta fylgt óbreyttu. Því jafnvel þó upphæðin í brtt. hv. 1. landsk. væri hækkuð, get ég ekki fallizt á hana. Það er af því, eins og ég hefi áður getið um, að við höfum rekið okkur á það áður, að skilyrðisbundin lánsheimild hefir verið gerð afturreka. Tel ég líkur til, að svo gæti farið aftur. Það er af þeirri ástæðu einni, sem ég hefi amazt við brtt. hv. 1. landsk. Böndum þeim, sem hún setur um meðferð lánsfjárins, amast ég alls ekki við, en tel þau fyrir hendi eigi að síður, þó brtt. yrði felld.