25.04.1932
Efri deild: 59. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2086 í B-deild Alþingistíðinda. (2388)
463. mál, fátækralög
Frsm. (Jón Jónsson):
Það er ekki langt síðan núgildandi fátækralöggjöf var sett; það mun hafa verið árið 1927, og var hún þá undirbúin af þeirri stj., sem þá sat að völdum, ráðuneyti Jóns Þorlákssonar. Þó ekki sé lengra um liðið, hafa ýmsar kvartanir komið fram um þessa löggjöf, og hér á Alþingi hafa oftar en einu sinni komið fram frv. um breyt. á henni og jafnvel um nýja heildarlöggjöf um þetta efni. Í fyrra var samþ. þáltill. í hv. Nd. um að skora á ríkisstj. að undirbúa breyt. á fátækralöggjöfinni.
Helzti gallinn, sem þótt hefir á þessari löggjöf, er það, hvað framfærslukostnaðurinn hefir orðið óhæfilega misþungur í einstökum framfærsluhéruðum. Það liggur hér fyrir skýrsla um þetta efni; hún er að vísu aðeins um það, hvað framfærslukostnaðurinn hefir orðið mikill í hverju framfærsluhéraði árið 1930, og er hún því ekki eins ábyggileg og ef hún hefði náð til fleiri ára. Þó gefur hún glögga bendingu um, hvað framfærslukostnaðurinn kemur yfirleitt ákaflega misþungt niður. T. d. hefir hann í Gerðahreppi orðið, ef miðað er við skuldlausa eign hreppsbúa, 11 kr. af hundraði. Í sumum sveitum landsins er aftur á móti enginn fátækrakostnaður, t. d. í einum hreppi í Borgarfirði, tveimur eða þremur í Austur-Skaftafellssýslu og e. t. v. víðar. Í Hjaltastaðahreppi í Norður-Múlasýslu er framfærslukostnaðurinn tiltölulega enn hærri en í Gerðahreppi, eða kr. 17,17 á hvert hundrað skuldlausra eigna. Þar eru íbúarnir ekki nema 200, en framfærslukostnaðurinn á 4. þús. kr. og skuldlaus eign sveitarinnar 19 þús. kr. Sýnir þetta, hvað harkalega framfærslukostnaðurinn getur komið niður eftir núgildandi löggjöf.
Afleiðingin af þessum afarmismunandi sveitarþyngslum hefir orðið sú, að einstakar sveitir hafa komizt í mestu fjárhagsvandræði. Hefir orðið að hjálpa þeim með því að lána þeim talsverðar upphæðir úr viðlagasjóði, sem síðar hefir svo orðið að gefa upp að meira eða minna leyti. Yfrleitt er ástandið í þessum efnum mjög slæmt og krefst því skjótra og góðra aðgerða.
Annað, sem mjög er bagalegt, er það, hvað mjög hefir farið í vöxt síðan þessi löggjöf var sett, að sveitarfélögin þurfa að kosta þurfalinga, sem dvelja annarsstaðar, sérstaklega í kaupstöðunum, þar sem framfæri þeirra er miklu dýrara heldur en í þeirra sveit. Á þann hátt verður framfærslukostnaðurinn miklu tilfinnanlegri en ella. Af þessu hefir líka leitt það, að safnazt hafa stórar skuldir á einstök sveitarfélög hjá öðrum framfærsluhéruðum, sem ekki hafa fengizt greiddar þrátt fyrir ýtarlegar tilraunir.
Ennfremur hefir það verið fundið að núgildandi fátækralögum, að þau heimila fátækraflutning. Hafa ýmsir fundið honum allt til foráttu. Hann er að vísu leiðinlegur og illt að þurfa til hans að taka. En hann hefir líka mjög þorrið á síðari árum, og er miklu mannúðlegri en áður, þá sjaldan hann fer fram. Frá mínu sjónarmiði er því sök sér um hann, þó sumir aðrir líti á hann alvarlegri augum.
Af öllu þessu er auðsætt, að nauðsynlegt er að ráða bætur á núverandi ástandi fátækramálanna. Fyrir þessu þingi liggja tvo frv. til heildarlaga um þetta efni, annað í þessari hv. d., flutt af hv. 2. landsk., og hitt í hv. Nd., flutt af hv. 1. þm. N.-M. og þremur öðrum hv. þm., að ég ætla. Frv. hv. 2. landsk. var vísað til allshn. snemma á þinginu, en hún hefir því miður ekki getað lagt til, að það væri samþ. eða lagt það til grundvallar fyrir þeim till., sem hún vill gera í þessu máli. Það er af ýmsum orsökum. Fyrst og fremst er þar farið inn á þá braut að gera allt landið í raun og veru að einu framfærsluhéraði. Það getum við ekki talið heppilegt, eins og nú standa sakir; álítum, að það yrði til þess að auka framfærslukostnaðinn meira heldur en við megum við. Það mundi draga úr þeirri hvöt, sem sveitarstjórnir hafa til þess að gera framfærslukostnað sem minnstan, á þann hátt þó, að sýna fulla mannúð.
Ýmsir hafa haldið því fram, að þótt ekki væri gengið inn á að gera landið að einu framfærsluhéraði, þá væri heppilegt að gera þá breyt. að hafa dvalarsveit að framfærslusveit. En í n. eru skiptar skoðanir um þetta atriði, og leggur hún því ekkert til um það, enda orkar tvímælis, hvort rétt sé að blanda jafnviðkvæmu máli hér inn í.
Frv. það, sem n. flytur á þskj. 463, er samið af skrifstofustjóra atvinnumálaráðuneytisins og hagstofustjóra. Frv. Þetta tekur aðeins til meðferðar þau atriði, sem mestum erfiðleikum valda um jöfnun framfærslukostnaðar. N. hefir með þessu frv. lagt til, að felldur sé niður sérstakur ríkissjóðsstyrkur, sem veittur er samkv. 66. gr. til sjúklinga í sjúkrahúsum, en að aftur sé úr ríkissjóði greidd upphæð til þess að jafna framfærslukostnað sveita. Gert er ráð fyrir því, að ef fátækraútgjöld sveitarfélags fer meira en 20% fram úr meðaltali fátækraútgjalda á öllu landinu, miðað að 1/3 hluta við mannfjölda, að 1/3 við skattskyldar tekjur, að 1/6 viðskuldlausar eignir skattgreiðenda og að 1/6 við fasteignamat, þá greiðist 2/3 hlutar af því, sem þar er fram yfir, úr ríkissjóði. Eftir gögnum þeim, sem n. hefir aflað sér, færir hún líkur fyrir því, að á þennan hátt megi jafna framfærslukostnaðinn milli sveitarfélaga landsins, með ekki meiri upphæð frá ríkissjóði en veitt er samkv. 66. gr. Hinsvegar er ekki ástæða til að borga sjúkrakostnað eins og nú er gert, þ. e. að styrkja sveitarfélög, sem ekki hafa nema 1 sjúkling í sjúkrahúsi, heldur þykir rétt að láta hann styrk renna til þeirra sveitarfélaga, sem hærri hafa framfærslukostnaðinn, jafnvel þótt þau hafi engan sjúkling í sjúkrahúsi.
Af því að n. leggur ekki til, að landið verði gert að einu framfærsluhéraði, dregur hún ekki úr hvöt sveitarfélaga til að halda styrkjunum niðri, því að eftir sem áður kemur mikill þungi á sveitirnar sjálfar, þar sem þær fá engan styrk fyrr en framfærslukostnaður er kominn meira en 20% fram úr meðaltali.
Í annan stað ákveður frv., að ráðstafað sé eldri skuldum milli sveitarfélaga. Er mikil þörf á þessu, því að sum sveitarfélög eiga stórfé hjá öðrum, sem þau hafa ekki fengið greitt. Er gert ráð fyrir því, að ríkissjóður geti veitt vissan styrk til þess að ljúka þeim skuldaskiptum.
Ég skal geta þess, að meðlimir allshn. áskilja sér óbundinn rétt til að flytja brtt. við frv. Sjálfur hefi ég t. d. tilhneigingu til þess að stytta sveitfestitímann úr 4 árum niður í 2 ár. Hefi ég þó ekki gert brtt. um þetta, en býst við að gera það.
Auk þess má segja það álitamál, hvort dottið hafi verið ofan á heppilega aðferð til að jafna milli sveitarfélaganna, þar sem miðað er að 1/3 við mannfjölda og að 1/3 við skattskyldar tekjur. Hefði ég haft tilhneigingu til að miða aðallega við skuldlausar eignir, en ekki mannfjölda, eða að takmarka það a. m. k. við tölu verkfærra manna. En aðalatriðið er, að með frv. er ráðin bót á verstu annmörkunum, sem sé hinum misjafna þunga á sveitarfélögunum. Held ég, að það hafi tekizt. Hafa líka verið sett skýrari ákvæði um greiðslu framfærslustyrks til manna, er staddir eru erlendis.
Vænti ég, að hv. d. leyfi málinu greiðan gang gegnum þingið.