25.04.1932
Efri deild: 59. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2090 í B-deild Alþingistíðinda. (2390)
463. mál, fátækralög
Einar Árnason:
Þetta frv. er flutt af allshn., og er það gert til þess að ráða bót einu atriði fátækralaganna, því, sem mest var aðkallandi, að jafna dálítið milli sveitarfélaganna eða létta undir með þeim, sem hafa þyngsta fátækraframfærslu. Að n. fór ekki lengra, kom til af því, að litlar vonir eru um það að koma fram gagngerðri breyt. á fátækral. Þó að ég sé í n., er ég ekki ánægður með frv., því að ég held, að það gangi of skammt í breyt. Vil ég þó ekki hindra framgang þess, því að það ræður bót á því, sem mest er aðkallandi.
Hv. 2. landsk. vísaði til frv. þess, er hann flutti hér fyrr á þingi og enn liggur fyrir allshn. Vildi hann, að n. skilaði því, hver sem afstaða hennar væri. Held ég, að lítið gagn væri að því, því að ég get sagt fyrir hönd n., að hún er á móti því að gera landið að einu framfærsluhéraði. Ég hefði kosið, að fátækral. yrði breytt í svipað horf og farið er fram á í frv. því, sem nú liggur fyrir Nd. og flutt er af hv. 1. þm. N.-M. o. fl. En ég geri ekki ráð fyrir því, að hægt sé að koma þessu þannig fram, að sú breyt. felist í þeim, að heimilissveit sé alltaf framfærslusveit.
Ég hefi verið því fylgjandi fyrir löngu, að dvalarsveit væri framfærslusveit, en landið ekki gert að einu framfærsluhéraði. Með því væri komið í veg fyrir erfið og óþægileg viðskipti og skuldakröfur milli sveitarfélaga. Hinsvegar hljóta framfærsluhéruð að hafa mikið aðhald um að eyða ekki að óþörfu fé til framfærslukostnaðar. Samkv. þessari skoðun minni myndi ég fylgja brtt. við þetta frv., sem færi í þá átt að stytta sveitfestitímann. Er ég viss um, að við það myndi minnka mjög argaþras milli sveitarstjórna.
Hv. 3. landsk., frsm. n., tók fram, að ákvæði 3. gr. væri aðalatriði frv., en þar er gert ráð fyrir að jafna þannig milli sveitanna, að ríkissjóður taki á sig nokkuð af framfærslukostnaðinum. En ég er ekki allskostar ánægður með ákvörðun 2. málsgr., og gæti ég þar fallizt á dálitla breyt. Flyt ég e. t. v. slíka breyt., ef ég sé fram á það, að hún muni fá fylgi. Mæli ég svo með því, eins og hv. 3. landsk., að frv. fái að ganga til atkv., því að þótt ekki náist allt með henni, yrði það þó til bóta, ef hún næði samþykki. Hinsvegar er ég sannfærður um það, að fátækral. verða bráðum tekin til endurskoðunar, en ég hefi enga trú á því, að það sé hægt að gera rækilega á þessu þingi.