04.05.1932
Efri deild: 67. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2118 í B-deild Alþingistíðinda. (2422)
463. mál, fátækralög
Jakob Möller:
Aðeins örfá orð út af því, sem okkur hv. 3. landsk. bar á milli, er mál þetta var síðast til umr.
Okkur deildi á um það, hversu langur sá tími væri, er þyrfti að liða frá því, er maður hefði síðast þegið sveitarstyrk, til þess að geta unnið sér sveitfesti. Hv. 3. landsk. vildi halda því fram, að hann væri nú 4 ár. En svo er mál með vexti, að á þinginu 1923 var sett í lög, að sveitfestistíminn skyldi vera 4 ár, og skilyrði fyrir honum, að viðkomandi hefði ekki þegið af sveit þann tíma. Á þinginu 1927, þegar fátækralögin voru til umr. Hér í Ed., var borin fram brtt. um það, að þessi tími skyldi vera 10 ár. Var brtt. þessi samþ. með 10:2 atkv. og ákvæðinu ekki breytt aftur, svo að í núgildandi lögum er hann 10 ár.