25.05.1932
Neðri deild: 83. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2120 í B-deild Alþingistíðinda. (2428)
463. mál, fátækralög
Frsm. meiri hl. (Sveinbjörn Högnason) [óyfirl.]:
Það er kunnara en frá þurfi að segja, hversu þung fátækraframfærslan er orðin á mörgum bæjar- og sveitarfélögum og hve mikil nauðsyn er á því, að einhver bot verði á þessu ráðin. Allshn. leit svo á, að í þessu frv., sem hér liggur fyrir, felist nokkur stuðningur fyrir þau sveitar- og bæjarfélög, sem verst eru stödd. Hinsvegar getur n. ekki fallizt á, að kippt sé burt úr fátækral. þeim ákvæðum, sem hingað til hafa veitt sveitar- og bæjarfélögum nokkurn rétt til styrks úr ríkissjóði til fátækraframfærslunnar, en það gera 66. og 67. gr., þar sem ákveðið er, að nokkur hluti af sjúkrastyrk og sömuleiðis af þeim styrk, sem veittur er þeim, sem verða fátækrastyrksþurfar erlendis, sé greiddur úr ríkissjóði. Meiri hl. n. leit svo á, að engin ástæða væri til að kippa þessum styrk burt, sem verið hefir, og það gæti jafnvel óbeinlínis komið fram aftur, ef frv. yrði samþ. eins og það liggur nú fyrir, á þann hatt, að þau sveitarfélög verði að fá styrk, sem áður hafa komizt af án hans. Þetta yrði til þess að ýta undir, að þau sveitar- og bæjarfélög, sem nú hafa létt fátækraframfæri og eru fyrir neðan meðaltal, kæmust upp fyrir meðaltal og myndu fyrr njóta styrks eftir ákvæðum þessa frv. því leggur meiri hl. n. til, að þessi ákvæði frv. verði felld niður, og brtt. miða einungis í þá átt.
Tveir nm. voru ekki á fundi, þegar ákvörðunin var tekin, og er mér ókunnugt um þeirra afstöðu í þessu efni.