05.03.1932
Neðri deild: 21. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2125 í B-deild Alþingistíðinda. (2442)

38. mál, skipulag kauptúna og sjávarþorpa

Frsm. (Einar Arnórsson):

Frv. Þetta kemur hér fram nú að efni til eins og hv. þd. gekk frá því í sumar. Allshn. leggur til, að það verði samþ., að viðbættri brtt., sem ég flyt á þskj. 49. Hún er þess efnis, að skipulagsuppdráttur, sem kann að vera framlagður áður en lögin öðlast konungsstaðfestingu, falli úr gildi, ef hann hefir ekki verið staðfestur af stjórnarráðinu innan árs.

Ég þarf svo ekki að fara fleiri orðum um þetta frv., þar sem það er gamall kunningi í hv. þd.