17.05.1932
Neðri deild: 76. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 621 í B-deild Alþingistíðinda. (245)
2. mál, fjáraukalög 1930
Magnús Guðmundsson:
Ég ætla aðeins að segja nokkur orð út af ræðu hv. þm. V.-Húnv. Ætla ég að byrja á því að taka fram, að mér finnst ýmsir óeðlilega háir liðir vera í þessu frv. Hv. þm. nefndi landhelgisgæzluna. Tek ég undir það, að hún er allt of kostnaðarsöm. Er líka við því að búast, þegar farið er með skipin eins og gert var. Árið 1930 voru eitt eða tvö skip tekin í mánaðartúra (ekki reyndar í einu) til þess að flytja einn ráðh. milli fundastaða út af landskjörinu. Annað dæmi, sem hann nefndi, var landsspítalinn. Var hann reyndar dýr, en þó er fært á reikninga landsspítalans ýmislegt, sem honum tilheyrir ekki. Er þetta því óeðlilega og reyndar allt of hár liður.
Um Arnarhvál er það að segja, að engin áætlun var gerð um kostnað hans. Stj. fór fram á það að mega eyða 225 þús. kr. til byggingar Arnarhváls, ef hún gæti sýnt, að við það sparaðist fé. En svo brýtur stj. hvorttveggja, bæði það, að hafa bygginguna ekki dýrari en 225 þús. kr., og svo sparnaðarheitið, því að nú verður ríkið að borga hærri húsaleigu en áður fyrir sömu skrifstofur. Hér er því ekki um það að ræða, að áætlunin hafi bilað.
Þá nefndi hann síldarbræðslustöðina og kvað áætlunina hafa bilað þar. Ég tel, að sjálfsagt hefði verið að leita álits þingsins á þeirri greiðslu umfram heimild, sem þar átti sér stað, þessi milljónarheimild var ekki bundin við eina síldarbræðslustöð, heldur var heimilað að byggja síldarbræðslustöðvar á Norðurlandi eða annarsstaðar. Ég segi eins og er, að ég er hissa á því, hvernig hægt var að eyða 1700000 kr. í þessa stöð. Hefði víst engan órað fyrir því, að slíkt feiknafé færi í eina síldarbræðslustöð.
Ég kæri mig ekkert um að ræða við hv. þm. um endurgreidda tolla. Skildist mér hann telja það rangt, að tilfæra slíkt í 19. gr. En það hefir þó verið siður frá því er ég man fyrst eftir, og hafa ekki komið brtt. við það. Held ég, að þessu verði erfitt að breyta, ef hv. þm. hugsar sér að draga frá það af tollum, sem endurgreitt er.
Um greiðslur vegna alþingishátíðarinnar ræði ég ekki, en vil þó benda á það, að fært er á kostnaðarliðinn meira en alþingishátíðarnefndin viðurkennir, t. d. ýmsar aðgerðir á Þingvöllum að undirlagi hæstv. dómsmrh., sem kostuðu á 3. hundrað þús. kr. Ég hefi enga tilhneigingu til þess að verja hátíðarnefndina, enda geta hér margir svarað fyrir hana. Man ég ekki, hvað veizlan kostaði, sem hv. þm. V.-Húnv. talaði um, að n. hefði haldið sér á 100. fundarafmæli sínu, en ég þykist þó vita, að hún var ódýrari en veizlan, sem haldin var á Siglufirði, þegar síldarbræðslustöðin var reist, því að hún kostaði á 4.þús. kr.