30.03.1932
Neðri deild: 38. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2130 í B-deild Alþingistíðinda. (2454)
38. mál, skipulag kauptúna og sjávarþorpa
Héðinn Valdimarsson [óyfirl.]:
Lögin um skipulag kauptúna og sjávarþorpa eru með merkustu l., sem Alþ. hefir afgr. Þar hefir Alþ. réttilega séð, að þörf er á góðu skipulagi þar, sem þéttbýli er fyrir, og að rétt sé að líta frekar á hag heildarinnar en einstakra manna. Nú er það svo, að eftir að lög þessi voru sett, hafa skipulagsuppdrættir farið fram og víða verið samþ. þar, sem bygging hefir verið léleg og skipulag ekkert, eins og alltaf er þar, sem einstaklingarnir ráða öllu án þess einhver annar kraftur komi til og setji reglur um framkvæmdirnar. Skipulagsuppdrátturinn fyrir Reykjavík, sem er merkasti bær hér á landi, hefir gert mjög mikla röskun á því skipulagsleysi, sem hér var áður, þó flestum þætti það það ná of skammt og að breyta þyrfti meiru, ef Reykjavík ætti að geta orðið myndarlegur og fallegur bær. Nú kemur hér fram frv., sem er — eða 2. gr. þess einskonar sprengingarkúla á skipulagsuppdrátt Reykjavíkur og annara bæja.
Með henni stendur það opið öllum spekulöntum að kaupa lóðir og heimta svo skaðabætur, ef þessar lóðir á einhvern hátt geta orðið til öðruvísi nota en samkv. skipulagsuppdrættinum á að verða. Ef 2. gr. frv. yrði samþ., mundi það því kosta Reykjavíkurbæ milljónir króna í skaðabætur, sem hann þyrfti að greiða þegar í stað. Þegar maður athugar þetta, liggur það í augum uppi, að ef spekulant á lóð óbyggða, þá er það það fyrsta, sem hann mundi gera, að fá sér uppdrátt af húsi á lóðinni, og sjá svo um, að það næði út í fyrirhugaða götu eða torg, fá neitun bæjarstjórnar fyrir að byggja það, og koma svo með skaðabótakröfu á hendur bæjarfélaginu. Hann mundi segja, að hann hefði sjálfur getað grætt á þessu, þó allir aðrir væru sammála um, að hann tapaði á því, og útlitið líka. Það kemur því ekki til nokkurra mála að samþ. frv. með 2. gr., og fellst ég á till. hv. þm. Borgf. um að fella hana burt. Hitt gerir minna til, ákvæðið um, að það megi ekki líða nema ákveðinn tími þangað til skipulagsuppdráttur er staðfestur.
Svo ég taki dæmi af Reykjavík, þar sem mikið af lóðunum hefir verið gefið, bókstaflega gefið einstökum mönnum, þá sjá allir, hvílíkt ranglæti það væri, ef engar breytingar mætti gera á útliti bæjarins, af því einstakir menn eiga lóðirnar, þó húsum sé ekki vel fyrir komið eða byggingarnar séu óhentugar nú. En það yrði afleiðingin, ef greiða ætti skaðabæturnar strax. Enda hygg ég, að hv. 4. þm. Reykv. tali hér ekki máli margra manna, þó það séu ef til vill einhverjir úr lóðabraskarastéttinni.