01.04.1932
Neðri deild: 40. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2158 í B-deild Alþingistíðinda. (2480)

256. mál, gjaldfrestur bænda og bátaútvegsmanna

Fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson) [óyfirl.]:

Ég veit vel, að það er þörf fyrir að setja einhverjar slíkar ráðstafanir eins og farið er fram á í frv. á þskj. 256, því að þær myndu gera töluvert gagn, aðeins ef þær væru til í lögum, þó að þeim væri aldrei beitt, því að á tímum eins og þessum geta menn gert bæði sjálfum sér og öðrum tjón með því að keppa hver fram fyrir annan til þess að reyna að bjarga sér. Geta menn á þann hátt gert sér miklu meira tjón en ef samkomulag er. Að þessu leyti getur frv. gert gagn. Að sjálfsögðu þarf að útbúa slík lög og slíkur reglur, ekki aðeins með tilliti til skuldunautanna, heldur einnig með tilliti til lánardrottnanna. Hér má á engan hátt ganga á rétt þann, sem lánardrottnarnir eiga, enda virðist það ekki gert í frv., og yfirleitt virðist mér það vel úr garði gert, annað eins nývirki og hér er um að ræða.

Það eru tvær til þrjár aths. sem ég vildi bera hér fram, sérstaklega vegna n. þeirrar, sem hefir flutt frv., því að ég vænti þess, að hún fáist til að bera fram brtt. við það, enda þótt það sé komið frá henni sjálfri.

Það er þá fyrst við 16. gr. Þar segir svo: „Ef lög þessi valda þeim stofnunum, sem gefið hafa út vaxtabréf, erfiðleika um innlausn þeirra bréfa, sem út eru dregin til greiðslu, er fjármálaraðherra heimilt að taka lán fyrir hönd ríkissjóðs til greiðslu á þeim, ef ekki er veitt til þess fé í fjárlögum“.

Slíkar skyldur, sem lagðar eru á fjmrn., mega ekki vera ótakmarkaðar. Hér er um þau lán að ræða, sem ekki er hægt að fá á erlendum peningamarkaði, því að hann er lokaður fyrir öðrum lánum en til atvinnurekstrar og arðvænlegra fyrirtækja, það verður því eingöngu að miða við hinn innlenda peningamarkað. Hjá bönkunum er ekki hægt að fá lán til þess að styðja þá sjálfa. Böndin berast þá aðallega að Landsbankanum sem seðlabanka, en ég tel ekki heppilegt, að fjmrn. skyldi koma til þess að gefa út seðla upp í þessar vangreiðslur, enda myndi það í mörgum tilfellum ekki nægja, þó að gefnir væru út seðlar innanlands, þar sem um erlenda lánardrottna er að ræða. Hér má því alls ekki vera óákveðin heimild. Það er ekki nema um tvennt að ræða, annaðhvort að veita fé í fjárl. til þessara nýju greiðslna, eða þá að ætla tiltekna tekjustofna til þess að standast þær. Það má ekki leggja ríkissjóði nýjar byrðar á herðar án þess um leið að sjá honum fyrir nýjum tekjumöguleikum.

Samkv. síðari mgr. þessarar gr. er ríkissjóður jafnframt skyldaður til að hlaupa undir bagga með sparisjóðunum, ef þeir lenda í greiðsluvandræðum vegna framkvæmdar laganna, og tel ég þetta almenna ákvæði jafnvel enn hættulegra en fyrra ákvæðið. Það liggur í augum upp, að ef þessi ákvæði verða samþ. óbreytt, yrði ríkissjóður krafinn um allar þær greiðslur, sem gjaldfrestur verður veittur á hjá bönkum, sparisjóðum og öðrum lánsstofnunum. Allar slíkar stofnanir mundu telja sig í greiðsluvandræðum, ef þær fá ekki uppi borið það, sem inni kann „að frjósa“ vegna þessara laga, og ekki hægt að fullvissa sig um, hverja greiðsluörðugleika ekki leiðir af þessum ráðstöfunum. Ég fæ ekki annað séð en að sparisjóðir og bankar, og þá ekki sízt bankarnir, verði að bera afleiðingarnar af því sem aðrir, að þeim innheimtist ekki fé sitt vegna þessara laga. Um það gildir hið sama svar sem hv. 2. þm. Skagf. gaf hv. þm. Vestm.: Þeir, sem ekki fá greiddar skuldir sínar eftir lögunum, mundu ekki heldur fá þær greiddar, þó að lögin væru ekki í gildi. — Gegnir alveg sama máli um sparisjóðina og bankana, að þeim er ekki heldur mögulegt að fá fram greiðslur á lánum sínum, þó að lögin væru ekki, ef þeim er réttilega framfylgt og í þeim anda, sem fyrir þeim er talað. Það er hinsvegar skylda Landsbankans og ríkisstj. að létta undir, svo sem hægt er, fyrir þeim stofnunum, sem lenda í greiðsluvandræðum, hvort svo sem þau greiðsluvandræði stafa af þessum lögum sérstaklega, eða af hinu almenna ástandi, og sparisjóðir og aðrar minni lánsstofnanir verða að leita til hinna stærri um hjálp, og stendur enda opið að leita til Landsbankans, sem mun hjálpa svo sem unnt er. Að fara að leggja almenna skyldu á stj. til að hjálpa í þessu efni kemur ekki til mála.

Þá kem ég að þriðja atriðinu, sem ég vildi drepa hér lítillega a. — Samkv. 18. gr. frv. er svo ákveðið, að allur kostnaður af framkvæmd þessara laga skuli greiðast úr ríkissjóði, eftir reikningum, sem fjmrh. úrskurðar. Hefir stundum verið talað um, að það væri óþolandi nú á þessum erfiðu tímum að vera alltaf að bæta við nýjum n., og minnist ég þess, að þessu t. d. var borið við í sambandi við frv. það, sem meiri hl. fjhn. þessarar deildar hefir flutt að mínu undirlagi á þessu þingi um skipun ríkisskattanefndar. Því var þá borið við, að þetta væri ókleift á þessum tímum, vegna hins mikla kostnaðar, sem af því mundi leiða fyrir ríkissjóð, og er þó tilgangurinn með skipun þeirrar n. að samræma skattaálagninguna í landinu og afla þannig ríkissjóði tekna, sem hann að lögum á rétt til, en fær ekki eins og framkvæmd skattalaganna nú er hattað. Kemur mér því á óvart, þegar nú er farið fram á að stofna 30 nýjar n., sem ríkissjóður á að kosta allar, án þess að nokkrir tekjumöguleikar séu í sambandi við þær, nema síður sé. Skýtur þessu allmjög skökku við hitt, ef nú er hægt að kosta 30 slíkar n., þar sem áður var ekki hægt að kosta ríkisþáttan. eina, sem auk þess mundi ekki kosta nema lítið brot af þeim tekjum, sem hún mundi afla ríkissjóði með starfi sínu. Þá er og erfitt fyrir fjmrh., sem ekki hefir nægan kunnugleika heima í héruðunum, að úrskurða slíka reikninga, og ég tel enda sjálfsagt, að kostnaðurinn greiðist af héruðunum líka, og þannig þá, að héruðin borgi 2/3 kostnaðarins, en ríkið 1/3, eins og héruðin að hinu leytinu skipa 2 menn í þessar n., en fjmrh. einn, og séu reikningarnir úrskurðaðir af hlutaðeigandi lögreglustjóra.

Þetta, sem ég nú hefir sagt, vildi ég taka fram í sambandi við þetta frv., og óska ég, að það verði tekið til yfirvegunar í n., og jafnframt, að ég verði boðaður á fund með n. til að ræða þetta frekar við hana.

Það hefir mikið verið talað um það í seinni tíð, að nauðsynlegt væri að hafa fjárlögin tæmandi og að stj. héldi sig við áætlanir fjárl., og ef þetta er tilætlunin, sem ég vona að sé, að farið verði eftir fastari reglum um þetta hér eftir en verið hefir 15 síðustu ár, vænti ég þess, að þingið fari hér ekki að útiloka þetta með því að leggja ótakmarkaðar skyldur á ríkissjóð og fjmrh., sem óhjákvæmilega hljóta að trufla allar áætlanir. Það getur ekki gengið til lengdar, að allar umr. um fjármál séu eins og umr. á þingmálafundum, svo sem verið hefir hingað til. Hér þarf takmarkana við, og það þarf að sjá fyrir peningum í þessu skyni með nýjum tekjustofnum, því að þessu verður áreiðanlega ekki fullnægt með nýjum lánum, nema þá að litlu leyti. Ég skal ekki neita því, að gefa mætti litla lánsheimild. Því hún má ekki vera stærri en það, að hún sé ekki ofvaxin okkar innlendu bönkum, en að öðru leyti álít ég, að þetta verði ekki uppi borið nema með nýjum sköttum.

Ég vil svo að lokum endurtaka það, að ég óska eftir, að n. taki þetta til ýtarlegrar yfirvegunar, og að n. mætti takast að tryggja fjármálastj. gegn þessum ótakmörkuðu heimildum, sem í frv. felast, og ég vil ennfremur endurtaka það, að ég óska eftir samvinnu við n. um málið.