01.04.1932
Neðri deild: 40. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2184 í B-deild Alþingistíðinda. (2487)

256. mál, gjaldfrestur bænda og bátaútvegsmanna

Ólafur Thors [óyfirl.]:

Ég skal ekki lengja umr. mjög, en aðeins segja nokkur fá orð um frv.

Ég get ekki komizt hjá því að taka undir með þeim, sem aðfinningar hafa látið í ljós um frv. Ég get ekki sagt, að ég álíti, að það geti komið að liði líkt og nauðasamningar. Auk þess álít ég, að frv. sýni ekki réttlæti í garð einstakra stétta. Og ef tilætlunin er, að þetta verði til hagsmuna og verndar fyrir atvinnurekendur, þá er ekki ástæða til að skilja undan þá atvinnurekendur, sem frv. nú útilokar. Ég álít, eins og hv. þm. N.-Ísf. sagði í öðru sambandi, að stærri atvinnurekendur séu ekki síður illa staddir. Ég held, að engin sérstök ástæða sé heldur til að ætla, að gengið verði að mönnum á þessu tímabili. Um landbændur er það að segja, að verzlunarskuldir flestra þeirra munu vera við Samband ísl. samvinnufélaga. Ég geri ekki ráð fyrir því, að sú stofnun geri sér leik að því að gera bændum erfiðara fyrir en hjá verður komizt á þessum erfiða tíma. Að vísu verzla líka margir bændur við kaupmenn. En það eru yfirleitt þeir betur stæðu og einkum eldri bændur, sem lengi hafa við kaupmenn verzlað og bundið tryggð og vináttu við þá. Er því lítil ástæða til að óttast, að að þeim verði gengið þetta tímabil. Ég hygg því, að meiri ástæða væri til að veita hinum minni útvegsmönnum slíka vernd. Ég bið hv. flm. að skilja þó eigi orð mín svo, að ég sé mótfallinn því, að þessum mönnum, sem frv. um getur, sé veittur allur sá stuðningur, sem þingið telur fært. En ég vil vekja athygli á þeim afleiðingum, sem þetta gæti haft í fór með sér, svo hin fyrirhugaða hjálp snúist ekki upp í ógreiða. Og ég kemst ekki hjá að játa, að ég er ekki óhræddur um, að frv. verði til að auka tregðu um lánveitingar. Þeir, sem lána nú, geta haldið, að eins fari með þau lán eins og þau, sem ákvæði þessa frv. ná til.

En svo er annað, sem er þó miklu stærra atriði. Margir þeir, sem gera sér að atvinnu að selja framleiðendum nauðsynjar sínar, geta komizt í öngþveiti, ef lánin eru fest og greiðsla þeirra stöðvuð. Erlendir lánardrottnar, sem veita innlendum mönnum lán eða gjaldfrest, munu ekki þora að halda því áfram. Mér dettur í hug, að hv. sessunautur minn (HV) mundi geta staðfest þetta að því leyti, er olíuverzlun snertir. Ég veit, að mörgum hv. þdm. er kunnugt um það, að olíuverzlanirnar, eða hinir innlendu menn, sem hafa söluna á hendi, veita hinum smærri atvinnurekendum lán til 3, 6 eða jafnvel 9 mánaða, og stundum þó lengur. Ef frv. verður lögfest, hafa þeir ekki lengur sömu aðstöðu til þessara lánveitinga. Er því athugavert að samþ. nú það, sem haft gæti slíkar afleiðingar í fór með sér.

Það getur vel verið, að ég hafi ekki enn, frekar en ýmsir aðrir, gert mér fulla grein fyrir því spori, sem hér er verið að stíga. En mér finnst full ástæða til, að þeir, sem vilja lögfesta þetta frv., geri sér fulla grein fyrir því, hvort það geti orðið til þess, að ýms þau verzlunarfyrirtæki, sem það snertir, geti af þeim sökum komizt í fjárhagsörðugleika, og þá með miklum rétti komið til ríkissjóðs og heimtað, að hann hlaupi undir bagga með ábyrgð eða annari hjálp. Mér finnst vel geta komið til greina, að slíkar yrðu afleiðingarnar. Og þótt þetta spor eitt og út af fyrir sig sýnist ekki svo sérlega uggvænlegt, þá gæti þó hugsazt, að það gæti haft örlagaríkar og þungbærar afleiðingar. Ég vil leiða athygli að einni afleiðingu, sem slík fyrirmæli gætu haft, en sem skipta þó ekki miklu máli og eru meira hugsanleg en raunveruleg. Við getum hugsað okkur, að samvinnufélag með 50 bændum, sem allir stæðu í sameiginlegri ábyrgð fyrir skuldum félagsmanna, væri krafið af skuldheimtumönnum um innieign þeirra. Þessu félagi væri svo ástatt, að 10 af bændunum ættu ekki fyrir skuldum og kæmu því ekki undir ákvæði laganna, 30 ættu fyrir skuldum en gætu ekki svarað aföllnum greiðslum, en 10 væru vel stæðir. Ef að félaginu væri gengið, þá gætt skuldheimtumennirnir ekki krafið þá 30 bændur, sem fellu undir ákvæði laganna. Þeir 10 bændur, sem væru gjaldþrota, gætu ekkert borgað. Efnuðustu bændurna 10 yrði því að krefja um allt. Þetta er nú kannske meira hugsanlegur en raunverulegur möguleiki, en hann sýnir þó einn af annmörkum þeim, sem eru á þessu frv., en þeir eru miklu fleiri, og það raunverulegir.

Ég hefi ekki enn gert mér fulla grein fyrir þeim afleiðingum, sem þetta gæti haft fyrir ríkissjóðinn. Ég hefi hlustað á hv. frsm. og hæstv. fjmrh. og það, sem þeir hafa sagt um þetta. Má vera, að hæstv. fjmrh. geri of mikið úr þeirri hættu, sem frv., ef það verður lögfest, geti stofnað ríkissjóði í. En vel get ég skilið það, að hann vilji ekki hafa þar um neina óvissu.

Þessar umr. eru næsta lærdómsríkar, og má ýmsar ályktanir af þeim draga. Hér í þessu frv. er farið fram á það, að hlaupa undir bagga með þeim framleiðendum, sem eiga fyrir skuldum. Allir tala um þann möguleika, að af þessu geti leitt kostnað. En hver á að greiða hann? Ríkissjóður getur það ekki, segir fjmrh., og þjóðin þolir ekki nýja skatta. Eftir útreikningi fjmrh. geta þessar upphæðir orðið allháar. Eins, og nú er getur ríkissjóður ekki greitt þetta, en hann á vitanlega aðgang að skattþegnum landsins. En hverjir eru þeir nú í þessu landi, sem geta tekið á sig bagga vegna þeirra atvinnurekenda, sem eiga fyrir skuldum“ Ég er talsvert kunnur efnahag framleiðenda við sjávarsíðuna, og það eru ekki neinar öfgar, þótt ég segi, að um flesta þeirra orki tvímælis, að þeir eigi fyrir skuldum. Og ég fullyrði, að ef atvinnuárferði þessa árs verður svipað og hinna síðustu, verði þeir auðtaldir, sem svo vel verða staddir við næstu áramót. Ég er ekki eins kunnugur fjárhag bænda, en ég hjá eftir því hjá hv. þm. Mýr., er hann sagði, að ef þessari kreppu létti af fljótt, væri engin ástæða til þess að örvænta um hag bænda. En hvaða líkur eru til þess, að kreppunni létti bráðum af ? Hvaða líkur eru til þess, að verðlag á íslenzkum framleiðsluvörum hækki bráðlega? Ég held fyrir mitt leyti, um leið og ég játa, að enginn má halda, að ég sé fullkominn spámaður í þessum efnum, að engar líkur séu til slíks nú á næstunni. Ég hygg, að litlar líkur séu til þess, að verðlag í heiminum fari hækkandi fyrr en a. m. k. búið er að leysa úr þeim stóru viðfangsefnum á sviði fjármálanna, sem allir helztu fjármálamenn stórþjóðanna glíma nú við, þar á meðal það, að teknar verði endanlegar ákvarðanir um greiðslu ófriðarskuldanna. Og það verða menn að gera sér ljóst að kreppan í ísl. atvinnulífi stafar af því, að orðið hefir óvenjumikil og stórvægileg hlutfallsröskun milli tilkostnaðar við framleiðsluna og verðlags á framleiðsluvörum. Þessi röskun getur ekki lagazt nema með því, að annaðhvort hækki verðlagið, og ég hefi fyrir mitt leyti talið lítil líkindi til þess, eða þá að framleiðslukostnaðurinn minnki. Og við Íslendingar erum ekki einraðir, jafnvel áhrifalausir um slíkt, nema hvað snertir kaupgjald. Ef það er skoðun hv. þdm. með mér, að líkur fyrir verðlagshækkun í heiminum séu mjög litlar, verða þeir að gera sér það ljóst, að kreppan, þ. e. a. s. þessi vandkvæði um jöfnuð milli tilkostnaðar og afrakstrar á einhverri framleiðsluvöru, byggist á kaupgjaldshækkun. Þeir verða einnig að gera sér það ljóst, að ef íslenzka þjóðin er reyrð í viðjar kreppunnar, svo að enginn sjái líkur til þess, að við getum losnað úr þeim viðjum, þá er tilgangslaust að koma með slíkt frv. sem þetta. Þetta frv. skoða ég einungis sem viðurkenning þess, að hv. landbn., sem flytur það, er það ljóst, hvílík kreppa er ríkjandi í atvinnulífi þessa lands. En ég kemst ekki hjá því að lýsa jafnframt yfir því áliti mínu, að hv. flm. hafi ekki gert sér grein fyrir, hvert er eðli og orsök kreppunnar. Því hefðu þeir gert það, hefðu þeir jafnframt séð, að þetta frv. kemur að sáralitlu liði, að ég ekki segi engu liði. Það var hv. 3. þm. Reykv., sem fullyrti það, að langsamlega mestur hluti þeirra skulda, sem nú hvíla á atvinnuvegum landsmanna, yrði aldrei greiddur, og hann stakk upp á því, að menn tækju til athugunar þá leið, hvort ekki væri rétt að strika út þessar skuldir. Ég innti hann eftir því, á hvern hátt hann hugsaði sér að framkvæma slíkt, og sú hugsun, sem vakti fyrir honum, er að skuldirnar yrðu færðar niður, þannig, að hlutaðeigandi atvinnurekendur stæðu á milli, þ. e. a. s., að eignir þeirra teldust samsvara skuldum. En ég fullyrði það, að ef þessi leið yrði farin, þá myndi af því leiða, að hinir íslenzku bankar, fyrst og fremst Landsbankinn, yrðu að gera svo miklar afskriftir af inneignum sínum hjá atvinnurekendum, að hann yrði á reikningum sínum að sýna efnahag, sem lægi mörgum milljónum fyrir neðan núll.

Það kann að þykja stór fullyrðing, að hér frá þingbekkjunum sé sagt, að hagur íslenzkra atvinnurekenda sé ekki betri en það, að ef Landsbankinn á að strika út dauðar skuldir, þá hafi það slíkar afleiðingar á hag bankans. En þetta er rétt, og það hefir alltaf verið svo á síðustu árum. Og efnahagsleg niðurstaða íslenzkra banka hefir verið svo í illu árferði, að ef þeir væru gerðir upp eftir þeim hætti, sem hv. 3. þm. Reykv. hugsar sér, þá stæðu þeir mörgum milljónum fyrir neðan núll. Það yrði því einungis af þessari ástæðu, tvímælalaust ófært að fara þessa leið. Auk þess sjá allir menn, að ekkert þjóðfélag getur byggt atvinnulíf sitt á því, að allir eða flestir atvinnurekendur verði að byrja á nýjan leik, eða standi á milli, og að þeir eigi svo að fá lán til áframhaldandi atvinnurekstrar frá banka, sem er mörgum millj. fyrir neðan núll. En það má vera, að þessar hugleiðingar hv. þm. séu að því leyti réttar, að ef engin líkindi eru fyrir verðlagshækkun og engin leið til þess að lækka kaupgjald í landinu, þá verði að velja þá leið að minnka þá einingu, sem notuð er í kaupgreiðslum og vöruviðskiptum innanlands.

Ég hefi með þessum fáu orðum látið í ljós það álit, að ég er hvergi nærri ánægður með frv. þetta né sterktrúaður á, að fyrirmæli þess komi að miklum notum. Ég mun þó greiða því atkvæði til 2. umr. og með því skapa mér sjálfum þann frest, sem ég tel mér nauðsynlegan til þess að gera mér glögga grein fyrir málinu.