01.04.1932
Neðri deild: 40. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2196 í B-deild Alþingistíðinda. (2491)
256. mál, gjaldfrestur bænda og bátaútvegsmanna
Frsm. (Magnús Guðmundsson):
Ég er dauður og hefi svo miklu að svara, að ég kem því ekki að í stuttri aths. Læt ég það því bíða til 2. umr. að svara því, sem mér þykir þörf á. Hinum miklu aths. hæstv. fjmrh. þarf ég heldur ekki að svara nú, þar sem hann ætlar að mæta í landbn. til umr. um málið. En ég vil segja honum það nú, að mér finnst hann óþarflega varkár. Ég lasta alls ekki, þó að fjármálaráðherrar séu varkárir; það þurfa þeir að vera, en of varkárir mega þeir þó ekki vera.