20.04.1932
Neðri deild: 56. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2211 í B-deild Alþingistíðinda. (2515)

256. mál, gjaldfrestur bænda og bátaútvegsmanna

Ólafur Thors [óyfirl.]:

Ég orðaði það við hv. frsm. landbn., að atkvgr. yrði frestað. Hann tók vel í það. Ég bjóst því við, að hann myndi óska þess. Ég hygg, að þetta sé nokkuð almenn ósk þdm. Ætti það ekki að tefja málið svo neinu næmi. Ástæðan fyrir því, að þessa er óskað, er nýlega fram komnar brtt., sem þdm. hafa enn ekki áttað sig á.