20.04.1932
Neðri deild: 56. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2211 í B-deild Alþingistíðinda. (2516)
256. mál, gjaldfrestur bænda og bátaútvegsmanna
Frsm. (Magnús Guðmundsson):
Það er rétt, að hv. þm. G.-K. kom til mín, er umr. voru að enda, og fór þess á leit, að atkvgr. væri frestað. Ég er fyrir mitt leyti ekkert á móti því, að það sé gert. ef frv. verður tekið fyrir sem fyrsta mál á föstudag og atkvgr. þá lokið.