18.05.1932
Efri deild: 77. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2216 í B-deild Alþingistíðinda. (2529)

256. mál, gjaldfrestur bænda og bátaútvegsmanna

Pétur Magnússon:

Ég hefi ekki treyst mér til að fylgja samnm. mínum um afgreiðslu þessa máls. Þeir leggja til, að frv. verði samþ. með einni fremur lítilsháttar breyt., en ég hefi ekki séð mér fært að stuðla að framgangi málsins að svo stöddu. Þykir mér að vísu ekki skemmtilegt að þurfa að setja mig í andstöðu við þetta mál, sem ég þykist vita, að ófáir geri sér miklar vonir um, en mér er það ljóst, að löggjafarstarfsemin má ekki verða að tilfinningamálum, heldur á róleg yfirvegun þar að ráða. Sé miðað við raunverulega hagsmuni, en ekki ímyndaða hagsmuni, og sá mælikvarði lagður á þetta frv., efast ég ekki um það, að ég stend ekki einn uppi með þá skoðun, að vafasamt sé að gera þetta frv. að 1. Efni þess er í stuttu máli það að veita þeim, sem stunda landbúnað eða útgerð báta, sem ekki eru yfir 30 smálestir að stærð brúttó, skuldagreiðslufrest, eftir nánari ákvæðum frv., sem ég skal .ekki þreyta hv. d. með því að taka upp, af því að hv. frsm. hefir gert það svo rækilega. Lét hv. frsm. svo um mælt, að hugmyndin að þessu frv. væri komin frá ríkisstj. eða stj. Búnaðarfélagsins, og væri frv. samið af síðasta búnaðarþingi. Er það rétt, að frv. var samið á síðasta búnaðarþingi, en því fer fjarri, að hugmyndin sé frá ríkisstj. eða stj. Búnaðarfélagsins, því aðeins og kunnugt er höfðu Danir á prjónunum fyrr í vetur frv. um líkt efni og hér liggur fyrir, en munurinn er aðeins sá, að þeir virðast nú fallnir frá að lögfesta þetta fyrirkomulag, en hér er helzt útlit fyrir, að það komist á, og er þó viðskiptakreppan þar í landi miklu meiri en hún er hér, og atvinnuvegir Dana, og þó sérstaklega landbúnaðurinn, í miklu hroðalegra öngþveiti en hér hjá okkur. Má og segja, að við séum nú á fyrsta ári kreppunnar, en í Danmöku er kreppan a. m. k. 2 ára gömul, og þótt viðskiptaörðugleikarnir séu þegar orðnir allmiklir hér á þessu fyrsta kreppuári, höfum við samt haft 4 góðæri samfleytt á undan því.

Og ef nauðsynlegt er vegna þessara viðskiptaörðugleika, sem ég þó engan veginn vil gera lítið úr, að grípa til svo róttækra ráðstafana eins og hér er um að ræða, er ég hræddur um, að sú saga endurtaki sig nokkuð oft. Þótt fjárhagsörðugleikarnir séu miklir og erfitt að reisa rönd við, verður og að gæta þess, að taka ekki á málunum með of mikilli vanstillingu, heldur reyna að forðast þær ráðstafanir, sem geta valdið alvarlegum truflunum í viðskiptalífi þjóðarinnar. Og það er einnig vist, að ekki verður bætt úr kreppunni með ævi að reyna að flýja undan henni, eins og hér er verið að gera. Ég óttast, að þessar ráðstafanir geti haft hinar alvarlegustu truflanir í för með sér fyrir viðskiptalífið í landinu, þar sem löggjöfin fer hér inn á þá braut að rifta lögmætum skuldbindingum og gerðum samningum, og menn þannig með beinum lagaákvæðum eru leystir undan þeim skuldbindingum, sem þeir hafa tekið á sig, því að þegar farið er inn á þessa braut á annað borð, er ekki gott að segja um það fyrirfram, hvar numið verður staðar á henni.

Með ákvæðum þessa frv. er kröfuréttindunum sköpuð nokkur sérstaða innan fjárréttindanna, og eru þau sett skor lægra en önnur fjárréttindi, að því leyti, sem ekki er ætlazt til, að þau njóti sömu réttarverndar. Þegar svo er komið, er ekki óeðlilegt, þótt maður hugsi sér þann möguleika, að menn forðuðust að verja fjármunum sínum á þennan hátt, sem í senn veitir minni réttarvernd og auk þess getur svipt eigendurna öllum ráðstöfunarrétti yfir fjármununum. Ég játa það, að æskilegt væri að geta dregið úr skuldaskiptunum, sem eru orðin allt of víðtæk, en það er ekki rétt, að gera það svo, að veikja um leið trúna á réttarlegt öryggi kröfuréttindanna, og gæti enda komið niður á þeim viðskiptum, sem sízt skyldi. Það er ekki fært að gera slíkar ráðstafanir sem þessar, nema með öruggri sannfæringu um það, að þetta komi að almennum notum, því að til slíkra úrræða má alls ekki gripa, þótt nokkrir einstaklingar innan þjóðfélagsins kunni að hafa stundarhagnað af. Það eina, sem getur réttlætt slíkar ráðstafanir sem þessar, er sú sannfæring, að þetta komi að almennum notum fyrir þjóðina, og er því rétt að athuga það, hversu miklar líkur eru til þess, að svo geti orðið.

Samkv. 1. gr. frv. er það ekki nema takmarkaður flokkur manna, sem verður aðnjótandi þessara hlunninda: „Þeir, sem hafa landbunað að atvinnu eða útgerð bata, sem eru 30 bruttó smálesta að stærð samtals eða minna“. — Ekki verður það þó véfengt, að fleiri hafa orðið fyrir barðinu á yfirstandandi viðskiptakreppu en þessar tvær stéttir manna. Við þekkjum allir, hversu atvinnuleysið kreppir nú að verkalýðnum, og hversu mjög peningaeklan háir verzlun og iðnaði og skapar atvinnuleysi innan þessara stétta, og svo mætti lengi telja. Alstaðar kemur kreppan við á einn eða annan hátt. Það er því ljóst, að ekki tekur þetta bjargræði til allra þeirra stétta, sem ef til vill hefðu þess not. En ef hinsvegar gera má ráð fyrir, að mikill hl. þeirra stétta, sem ákvæði frv. taka til, geti haft þeirra not, er ástæða til að taka það til alvarlegrar íhugunar, hvort ekki sé rétt að grípa til þessara ráða. —- Má þó hinsvegar benda á það í þessu sambandi, hversu mikið ranglæti þessi löggjöf getur skapað. Hugsum okkur það dæmi, að maður, sem stundar búskap eða bátaútveg, selji bú sitt eða útgerð og flytji í kaupstað, þar sem hann ver fjármunum sínum í einhvern atvinnurekstur: Hugsum okkur ennfremur, að maðurinn hafi selt útgerð sína eða bú upp á lán til lengri eða skemmri tíma og að fé hans standi þannig fast í skuldabréfum, en sjálfur hafi hann hinsvegar tekið lán til atvinnurekstrar síns og hagað afborgunum af því í samræmi við það, að skuldunautur hans sjálfs stæði í skilum. En þá kemur löggjöfin til skjalanna og leysir skuldunaut þessa manns undan skuldbindingum sínum, án þess þó að mæla honum sjálfum úr sama hnefa. Kröfuhafinn stendur uppi varnarlaus, verður að standa við sínar skuldbindingar, en getur það ekki, af því að annar er leystur undan skuldbindingum við hann, og er þannig gerður að öreiga fyrir atbeina þessara 1. Slíkri löggjöf verður ekki valið réttlætisnafn.

Þá kem ég að hinu, að það er ekki nema takmarkaður hl. af þeim 2 stéttum, sem þessi sérréttindi eru sköpuð fyrir, sem verður þessara hagsbóta aðnjótandi. Er þess fyrst að gæta, að ákvæðum þessara 1. verður aðeins beitt um takmarkaðan hl. af kröfum, því að gjaldfresturinn nær aðeins til höfuðstóls þeirra skulda, sem stofnaðar eru fyrir 1. jan. 1932 vegna landbúnaðar og bátaútvegs. Verður að vísu erfitt að gera greinarmun á því, hverjar skuldir eru stofnaðar af þessum ástæðum sérstaklega og hverjar af öðrum ástæðum, en hér skiptir þó meira máli, að það er aðeins höfuðstóll skuldanna, sem ákvæði frv. ná til. Meðan þessir viðskiptaörðugleikar standa yfir verða það undantekningar, ef lánsstofnanir eða einstaklingar ganga að höfuðstól skulda. Opinberar stofnanir munu sýna hina fyllstu tilhliðrunarsemi í þessum efnum. Og sama er að segja um einstaklinga. Það munu ekki vera nefna undantekningartilfelli, þar sem sérstaklega stendur á, að einstaklingar gangi hart eftir skuldum sínum, og gera menn þetta sjálfra sín vegna, ef ekki vegna skuldunautanna, því að eins og stendur er ekki glæsilegt að setja verðmæti á uppboð. Er lítið í þau boðið og hætt við, að kröfuhafinn tapi þannig meira eða minna af kröfum sínum. Ákvæði frv. koma því lítið til framkvæmda í raun og veru.

Þá kem ég að þeim takmörkunum, sent 10. gr. setur fyrir því, að skuldunautur geti komizt undir ákvæði 1. Kveður þar svo á, að skilan. megi ekki úrskurða skuldunauti frest á afborgunum af skuld hans, ef hann geti innt þær af hendi eftir samningum eða kröfum án verulegs hnekkis fyrir atvinnu sína, eða ástæður hans séu svo erfiðar, að ekki séu líkur til, að hann geti uppfyllt skuldbindingar sínar í venjulegu árferði, og loks, ef hann á ekki fyrir skuldum samkv. framtali til tekju- og eignarskatts. — Vil ég segja það, að þeir menn, sem eiga fyrir skuldum eftir þá uppgerð, sem hér er lögð til grundvallar, munu í flestum tilfellum komast frá því að greiða skuldbindingar sínar, en hinir, sem ekki eiga fyrir skuldum eftir slíka uppgerð, munu hinsvegar þurfa á þessum greiðslufresti að halda. Sýnist þetta benda til þess, að ákvæði l. muni ekki koma að almennum notum, og í hæsta lagi verða til hagsbóta fyrir einstaka menn.

Þá þykja mér ákvæði 11. gr. mjög varhugaverð, en þar er talað um, að skilan. geti úrskurðað skuldunauti, ef hann fullnægir vissum skilyrðum að hennar dómi, frest á þeim afborgunum, sem hann, að áliti hennar, getur ekki innt af hendi án verulegs hnekkis fyrir atvinnu sína. Er ég hræddur um, að þetta verði vansasamt verk fyrir skilan., sem þannig eiga að greina á milli, hverjar afborganir skuldunauturinn getur innt af höndum, og hverjar ekki, og hætt við, að þeim gangi erfiðlega að gera svo öllum líki í þessum efnum, enda yrði að gera kröfu til þess, að afborganirnar skiptust jafnt á milli kreditoranna, og eðlilegt, að það yrði illa séð, ef einstakir kreditorar fengju allur afborganir greiddar, en aðrir engar.

Um 16. gr. skal ég ekki fara mörgum orðum. N. er sammála um að fella þar niður síðari málsgr., enda nær það vitanlega engri átt að fara að löghelga verknað, sem þung refsing liggur við samkv. hegningarl.

Síðasta sr. frv. kveður svo á, að þessi l. skuli gilda til 1. júlí 1933. Þykir mér menn vera allbjartsýnir, ef þeir búast við því, að svo hafi rætzt úr fjárhagsastandinu eftir eitt ár, að l. megi þá falla niður, ef nauðsynleg eru á annað borð, enda er og sannfærður um það, að ef farið verður inn á þessa braut, verður óhjákvæmilega að framlengja 1., því að ella verða menn aðeins verr settir en áður, og ekki annað á minnzt en að þeim hefir safnazt stærri skuldabyrði, sem lendir þyngra á þeim á eftir.

Ég þykist þá hafa gert nokkra grein fyrir því, að ekki séu miklar líkur til, að þessi 1. muni koma að almennu gagni. Ég þykist ennfremur hafa fært rök fyrir því, að hér sé um svo óvenjulega leið að ræða og varhugaverða, vegna þeirra réttarskerðinga, sem í frv. felast, að ekki megi út á hana leggja nema af knýjandi nauðsyn og óræk rök komi fram fyrir því, að slík ákvæði séu ekki aðeins einstökum mönnum til hagsbóta, heldur komi að almennu gagni. Af þessum ástæðum hefi ég og ekki getað léð frv. fylgi mitt. Hinsvegar efast ég ekki um það, að þeir, sem að þessu máli standa, gera það af góðum hug, og þar sem þeir eru vafalaust margir, sem gera sér vonir um, að þetta megi koma að gagni, hefi ég ekki farið þá leið að leggja til, að frv. verði fellt, en vil leyfa mér að bera fram svo hljóðandi rökst. dagskrá í málinu:

„Í því trausti, að ríkisstj. stuðli að því, eftir föngum, að opinberar lánsstofnanir gefi skuldunautum sínum greiðslufrest, svo sem frekast þykir fært, meðan núverandi fjárhagsvandræði haldast, tekur d. fyrir næsta mál á dagskrá“.

Mér þykir ekki óhugsanlegt, að ef á þarf að halda, hafi stj. aðstöðu til þess að vinna að því, að opinberar lánsstofnanir sýni eins mikið langlundargeð og hægt er í þessum efnum og gangi ekki að mönnum, nema í brýnustu nauðsyn. Ég geri heldur ekki ráð fyrir því, að á þessu ári verði almennt gengið að skuldum frá síðasta ári. Ég held, að flestar lánsstofnanir muni láta þetta liggja á hillunni til næstu áramóta og muni ekki ganga að skuldum, sem í vanskilum eru og ekki eru eldri en frá síðasta ári. Ef dagskrártill. mín yrði samþ. og stj. beitti áhrifum sínum í þessa átt, mundi þannig raunverulega nást hið sama og fengist með samþykkt frv., en munurinn yrði þó sá, að þingið losaðist við að skjóta þjóðinni skelk í bringu, eins og gert mundi með því að samið. Þetta óvenjulega frv., sem hér er um að ræða.