26.05.1932
Efri deild: 84. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2243 í B-deild Alþingistíðinda. (2544)

256. mál, gjaldfrestur bænda og bátaútvegsmanna

Nú er liðinn nokkur tími síðan fyrri hl. umr. fór fram, hann tíma hefir landbn. notað til að afla sér nánari upplýsinga um þetta mál frá kunnugum mönnum, og hafa þeir m. a. bent okkur á það, að meiri líkur væru fyrir því en við höfðum ráðgert, að frv. þetta, ef að l. verður, mundi verða mikið notað. Svo hefir viljað til, að landbn. hefir átt viðtal við alla bankastjórana hér við aðalbankana og setið með þeim sameiginlegan fund. Var það einróma álit þeirra, að l. yrðu mikið notuð af bátaútgerðarmönnum. Þannig var það upplýst, að megnið af útgerðinni í Vestmannaeyjum mundi falla undir ákvæði þessara laga, og lögin verða notuð af henni. f því sambandi vil ég benda á það, sem reyndar er vel kunnugt, að veltufjárþörf bátaútgerðarinnar er margfalt meiri en landbúnaðarins. Ef því frv. þetta yrði lögfest, þá mundi verða um miklu víðtækari notkun að ræða og stærri fjárhæðir en við höfðum búizt við. Landbn. tók því það ráð að bera fram brtt. við 1. gr. frv. Er hún á þskj. 805 og gerir þá höfuðbreyt. á 1. gr., ef samþ. verður, að hún tekur bátaútveginn út úr gr. og þar með frv. Nær þá frv. aðeins til landbúnaðarins. Ástæðan fyrir þessari brtt. er sú, sem ég þegar hefi lýst:

nánari athugun og álit bankastjóranna. Mega þeir gleggst um þetta vita. Ég geri ráð fyrir því, að um þetta verði skiptar skoðanir, en fyrr en það kemur í ljós mun ég eigi ræða meira um þetta atriði.

Í öðru lagi hefir n. gert brtt. við 15. gr. Í þeirri gr. er talað um tvennskonar ákvæði í sambandi við þá menn, sem komizt hafa undir íhlutun skilanefndar um viðskipti sín. Þar er talað um, að ef þeir samkv. Í þessum rýri tryggingar skuldheimtumanna sinna, þá komist þeir undir ákvæði ákveðins kafla hegningarlaganna. Þetta þótti n. óþarfi að taka fram, þar sem það er sjálfsagt. En hinsvegar telur n. rétt að setja ákvæði um það, ef veð er rýrt án þess að það heyri undir hegningarlögin.

Þá er brtt. við síðari málsgr. 16. gr. Áður hafði n. borið fram till. um, að þessi málsl. félli burt, en jafnframt lýst því, að sú brtt. væri tekin aftur til 3. umr. Nú hefir n. getað hugsað sér, að þessi málsl. gæti haldið sér með því að bæta inn í hann eins og 3. brtt. leggur til, þannig, að atvmrh. geti úrskurðað að undanþiggja þær lánsstofnanir, er í gr. getur, frá því að verða teknar til gjaldþrotameðferðar, enda fullnægi þær þeim skilyrðum, er gr. getur um.

4. brtt. fer fram á, að sett verði ný gr., sem mæli svo fyrir, að tímabilið frá afhendingu gjaldfrestsbeiðninnar til loka hins úrskurðaða frests skuli ekki talið með fyrningartíma skuldar né víxilréttar.

Síðasta brtt. n., um fyrirsögn frv., er eðlileg afleiðing, ef hinar brtt. n. verða samþ.