04.06.1932
Efri deild: 94. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 637 í B-deild Alþingistíðinda. (256)

2. mál, fjáraukalög 1930

Frsm. meiri hl. (Einar Árnason):

Meiri hl. fjhn. leggur til, að þetta frv. verði samþ. óbreytt. Að öðru leyti mun meiri hl. ekki sjá ástæðu til að ræða þetta mal nú, sérstaklega vegna þess, að komið er að þinglokum og málið hefir ýtarlega verið athugað og rætt hér í þinginu.