28.05.1932
Efri deild: 86. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2271 í B-deild Alþingistíðinda. (2569)
256. mál, gjaldfrestur bænda og bátaútvegsmanna
Halldór Steinsson:
Það gladdi mig að heyra, að sú skoðun, sem ég lét í ljós við 1. umr. þessa máls, er að ryðja sér til rúms í d., að þessi afgreiðsla myndi verða til þess að draga úr útlánum. Hv. 1. landsk. hélt einmitt því sama fram og sagði, að það væri uggur í sér um, að þetta gæti orðið til að gera bændum erfiðara fyrir, því að lánardrottnar myndu yfirleitt verða varkárir í útlánum til þeirrar stéttar, sem nyti þessara fríðinda. ég fyrir mitt leyti hefi áður tekið það fram, að ég er sannfærður um það. En mér skildist á hv. 1. landsk., að hann héldi, að sú útlánavarkárni myndi einungis koma fram gagnvart bændum. Ég held þó, að hún myndi ná miklu lengra, því að lánardrottnar myndu yfirleitt ganga út frá því, að úr því að þessi löggjöf væri í eitt skipti komin á, þá myndu komandi þing halda áfram á þeirri braut og lengra, unz fleiri og fleiri stéttir kæmust inn undir lögin, svo að ég held, að ganga megi út frá því sem vísu, að lánardrottnar myndu verða varkárari við öll útlán, og það er einmitt einn af hinum stóru göllum, sem þessi lög mundu hafa í för með sér, — ekki þó af því, að lán séu svo æskileg. Það væri æskilegra, ef menn þyrftu ekki á lánum að halda, en á þessum tímum er viðskiptalífi manna svo háttað, að hjá lánum verður ekki komizt. Viðskiptalífið byggist yfirleitt á lánum til lengri eða skemmri tíma, og menn geta ekki lifað an þeirra. Þess vegna tel ég það einn af ókostum þessara laga, að þau draga úr lánstrausti manna. Mín skoðun á málinu í heild er alveg hin sama og áður hefir verið. Ég álít þetta frv. fyrst og fremst kák, ef það á annað borð gerir nokkurt gagn. Hér er farið fram á að taka örfáa menn úr einni stétt landsins, — því að hversu margir eru þeir af bændum landsins, sem myndu komast inn undir þessi lög? ég hygg, að ef ætti að fara að gera upp status bænda, þá væru þeir miklu fleiri, sem ekki ættu fyrir skuldum, en hinir. Hér er því ekki verið að gera neitt stórnýmæli fyrir bændastétt landsins í heild, því að þeir yrðu svo fáir, sem kæmust inn undir þessi lög. Að þessu leyti er frv. kák. En að hinu leytinu skapar það svo afskaplega mikið ranglæti, að taka þannig út úr hluta einnar stéttar í landinu og gera hana aðnjótandi slíkra gæða. Hæstv. forsrh. gat um það við 1. eða 2. umr. þessa máls, að aðalþörfin fyrir þetta frv. væri að hjálpa skuldunautum, þegar svo stæði á, að verzlunarfyrirtæki færi á höfuðið. Hvar kæmi þessi hjálp við? Ég held, að það hafi verið hv. 3. landsk., sem minntist á þetta sama. Hans sjóndeildarhringur nær nú sennilega ekki langt í þessu tilfelli. Það segir sig sjálft, að mörg verzlunarfyrirtæki munu á þessum árum fara um koll. En hvað eru þá þessir fáu bændur, sem komast undan, samanborið við allan hann aragrúa skuldheimtumanna, sem eiga sjálfsagt miklu verri aðstöðu heldur en einmitt þessir bændur, sem eiga fyrir skuldum? því að þeir menn, sem kaupa upp skuldir slíkra fyrirtækja, ganga yfirleitt ekki harðast að þeim, sem eiga fyrir skuldum, heldur hinum, sem þeir vita, að margir lánardrottnar standa á, til þess þó að fá eitthvað inn. En þeir vilja heldur komast að föstum samningum við þá,, sem eiga fyrir skuldum. Það er nú ómögulegt að segja, að þetta sé bjargrað til að ráða fram úr því kreppuástandi, sem nú er.
Hv. 3. landsk. sagði, að það væri engin hætta á því, að þessi l. yrðu framlengd. Menn bjuggust heldur ekki við, þegar farið var að lögleiða hér gengisviðauka, verðtoll og ýmsa fleiri skatta, að þeir yrðu framlengdir. Þetta allt átti einungis að gilda fyrir eitt ár. Það er ekki fyrirsjáanlegt, að kreppan verði svo afstaðin í byrjun næsta árs eða á næsta þingi, að ekki kunni að þykja ástæða til að framlengja slík lög, og sú reynsla, sem menn hafa af slíkum bráðabirgðalögum, er þannig, að menn verða að vænta þess, að þau verði framlengd framvegis.