14.05.1932
Neðri deild: 75. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2290 í B-deild Alþingistíðinda. (2595)
245. mál, byggingarsamvinnufélög
Frsm. (Sveinbjörn Högnason):
Hv. 1. þm. Skagf. hefir svarað mestu af aths. hv. 3. þm. Reykv., sem tók máli þessu með velvild, þó að það kæmi skýrt fram, að verkamannabústaðirnir væru honum hjartfólgnastir, enda þegar komnir myndarlega af stað. Hann benti á, hv. 3. þm. Reykv., að hér væri farið fram á þriðju leiðina í byggingarmálum. Þetta er alveg rétt, og er þess ekki vanþörf, því eins og bent hefir verið á, getur löggjöfin um verkamannabústaði ekki fullnægt byggingarþörf kaupstaðanna, m. a. vegna tekjuhámarksins. Það er ekki heldur sama, hvernig byggt er fyrir framtíðina. Aðaláherzluna þarf að leggja á það, að svo skipulega sé byggt, að húsnæðið verði ekki of dýrt.
Að því er snertir lausn húsnæðismálanna fyrir þá menn, sem svo eru fátækir, að þeir geta ekkert lagt fram, þá hygg ég, að réttara sé, að bæjarfélögin leigi þeim húsnæði, heldur en að fara inn á þá braut að sveigja lögin um verkamannabústaði svo, að allir geti komizt undir þau. Þá er ekki heldur eðlilegt, að ríkið styrki þá menn beinlínis, sem geta sjálfir leyst húsnæðismál sín, en hitt er sjálfsagt, að ríkið skapi öllum eins hæga aðstöðu og hægt er með góðu móti, bæði með aðgangi að lánsfé og heppilegra skipulagi á þessum málum yfirleitt.