05.04.1932
Neðri deild: 43. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 163 í B-deild Alþingistíðinda. (26)

1. mál, fjárlög 1933

Fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):

Mér er markaður tími út andsvara, svo það verða aðeins örfá atriði af mörgum, sem ástæða væri að ræða, sem ég get komizt yfir.

Hv. 4. þm. Reykv. lauk ræðu sinni með því að leitast við að sanna, að erfiðleikar þeir, sem nú steðja að, stöfuðu aðallega af stjórnarfari síðari ára. Hér hefðu eintómir amlóðar ráðið, og því væri nú svo komið sem komið er. Afleiðingin af þessari ályktun hv. þm. er vitanlega sú, að amlóðar hafi haft ráðin um heim allan, því alstaðar hefir farið á sömu leið, alstaðar hafa erfiðleikarnir dunið yfir, alstaðar hefir kreppan spennt atvinnu- og viðskiptalíf heljargreipum. Og þótt skuggalegt sé útlits hér á landi, þá er það þó hvergi nærri eins vont og víða annarsstaðar. Ef þessi skýring hv. þm. væri rétt, þá væri það óskiljanlegt, að kreppa skuli ávallt verða hér á landi á sama tíma og annarsstaðar. Svo hefir þó alltaf orðið; svo var bæði um kreppuna 1926 og eins um kreppu þá, er upp kom í ófriðarlokin, á árunum 1921–1922.

Hv. þm. benti á, að loftvog hefði verið farin að falla á árinu 1930. En ég hefi nú satt að segja ekki orðið var við miklar kreppuhugleiðingar á undanfarandi þing um hjá þessum hv. þm. Hv. þm. lætur glepjast af því, að hann sér nú og veit ýmislegt, sem hvorki hann né aðrir vissu síðasta sumar, hvað þá áður. Það var yfirleitt ríkjandi bjartsýni fyrri hluta árs 1931. Kreppan hafði þá staðið svo lengi úti í löndum sem kreppur eru vanar að standa, og menn bjuggust því við, að henni færi að létta. Þetta hafði sterk áhrif á stjórnir banka og atvinnufyrirtækja. Bankarnir voru ekki hræddir við að lána fé til útgerðar, þótt selja þyrfti skpd. á allt að 90 kr., til að útgerðin bæri sig. En verðið reyndist ekkert nálægt 90 kr., eins og allir vita nú. Ekki var þetta ríkisstjórninni að kenna. Það voru stjórnir banka og atvinnufyrirtækja, sem þessu réðu, og var raunar vorkunnarmál.

Fyrsti vottur þess, að kreppunni mundi ekki létta, heldur magnast frá því, sem var, varð í Austurríki og Þýzkalandi í sumarbyrjun, þegar stórbankar tóku að hallast og fé Englendinga fraus þar inni. En höfuðrotið hófst ekki fyrr en að loknu sumarþingi. Tónninn á sumarþinginu var yfirleitt sá, af allra flokka hálfu, að nú færi að birta til, útlit væri sæmilegt og tekjur ríkisins mundu hrökkva fyrir ærnum útgjöldum. Ég hygg, að ekki þurfi lengi að leita að slíkum yfirlýsingum úr flokki hv. 4. þm. Reykv. Þeim var það vorkunn, þótt þeir sæu ekki fyrir það, sem nú er öllum bert orðið. En þetta sýnir, að þá var ennþá ekki fallin loftvogin fyrir sjónum stjórnmálamannanna.

Það var eiginlega ekki fyrr en í sept., að mönnum varð ljóst, að til stórtíðinda dragi, en það var þegar sterlingspundið féll. Og það verð ég að segja, að þá er flest fundið til að ásaka stj., þegar hún er ásökuð um gengisfallið. Auðugum og voldugum þjóðum tókst ekki að varðveita verðgildi gjaldeyris síns. það varð óviðráðanlegt að dómi hv. 4. þm. Rvík. það var bara ísl. ríkisstj., sem átti að gera allt, sem var ómögulegt.

Nei. Kreppan hefir haft öfug áhrif. Hún er höfuðorsök þess, hvernig atvinnuvegirnir nú standa að vígi, bankarnir og ríkið. Heimskreppan er höfuðorsökin, og það er villandi að rekja aðrar orsakir til þess. Um þetta verður ekki deilt. Höfuðorsök ástands atvinnuveganna er utanaðkomandi. Fyrr en það er viðurkennt, verða ekki tekin rétt ráð til að bæta úr.

Hv. þm. Seyðf. talaði hér langt mál og gerði ýmsar óframkvæmanlegar kröfur. Hann ávarpaði stj. rétt eins og hún væri forsjónin sjálf, utan og ofan við allt ástandið. Hann lýsti því, hvernig ástatt er fyrir verkafólki, bændum, atvinnurekendum. En stj. — hún á úr öllu að bæta, öllu að bjarga, hún er engum örðugleikum háð — öðrum en máske svona löguðum ræðuhöldum.

Hv. þm. talaði mikið um hin talandi verk stj. frá fyrri árum. Hann virtist halda því fram, að stj. hefði framkvæmt of mikið áður, en of lítið nú. Hv. þm. getur nú frómt úr flokki talað um hin talandi verk stj., því sjálfur er hann í vissum skilningi eitt af verkum stj., og máske það sem hæst talar og e. t. v. lengst. Það er samt engin ástæða fyrir hann til að gera óviðráðanlegar kröfur til stj. Hann mundi ekki taka slíku tali vel, þegar komið væri til hans sem bankastjóra, þá mundi hann fyrst og fremst athuga möguleikana á því, hvað getur borið sig, og hvað er fyrirsjáanlega ógerningur. Það er nákvæmlega það sama og ríkisstj. verður að gera. Samt gerir hv. þm. kröfur til ríkisstj. um að gera þetta og hitt, um að gera allt, án þess að fá tekjuauka, og jafnvel án þess að hafa trausta tekjustofna. Hún á að bjarga öllu með engu. Þetta er sama krafan og stúlkan gerði, er hún bað um skó, er væri stór innan í, en lítill að utan, svo hún gengi í augu biðlanna. Þessar kröfur hv. þm. eiga víst að ganga í augu kjósendanna.

Ég veit ekki betur en að hvaða stj., sem er, verði að lúta ástandi því, er ríkir á hverjum tíma, engu síður stjórnir jafnaðarmanna en annara. Það sjá jafnaðarmannastjórnirnar í Englandi og Danmörku. Þær hafa orðið að lækka kröfurnar og spara. Það sá jafnaðarmaðurinn Thorson í Svíþjóð á sínum tíma. Þegar kommúnistar komu til hans og heimtuðu ríkisstyrk og atvinnubætur, þá sagði hann þeim, að ríkið mætti aldrei gera of mikið á krepputímum. Í sambandi við þetta má minna á hið geigvænlega frv., er hv. þm;. bar hér fram á síðasta þingi, 11 millj. frv., er öllum ofbauð, svo að enginn hefir á það minnzt síðan.

Hv. þm. minntist á, að það þyrfti að gera eitthvað til að greiða fyrir afurðasölunni og semja við aðrar þjóðir, og vildi láta á sér skiljast, að ekkert hefði verið gert í þessu efni. Hann mun samt vita, að Sveinn Björnsson hefir verið sendur til Noregs vegna kjöttollsmálsins, og hefir skilað um það áliti. Hann veit líka, að kjötmarkaðurinn í Noregi er tregur og illur. Hann veit ennfr., að hæstv. forsrh. hefir borið fram frv., er miðar að því að flyta fyrir byggingu frystihúsa, svo að við getum flutzt meir yfir á nýmetismarkaðinn. Slíkar ráðstafanir þarf að gera, og þær eru líka gerðar. Hv. þm. mun kannast við það, að viðvíkjandi fisktollinum í Englandi er ekkert að gera að svo stöddu fyrir okkur. Brezka alríkið heldur fund í Ottawa í júlí í sumar um tollamál sín. Fyrr en þeim fundi er lokið talar brezka ríkið ekki við neinn. Þá fyrst er möguleiki til þess að tala við Englendinga um sameiginleg tollmál. Að svo stöddu er það ekki fyrir aðra en Englendinga að gera tollkröfur til stjórnar sinnar. Nú eru fiskkaupendur í Aberdeen og Orkneyjum að reyna að fá eftirgjöf á tolli af innfluttum fiski, sem fluttur er úr landi aftur. Gangi þeim ekki neitt, er ekki við að búast, að öðrum þýði að reyna. Vitanlega ber ríkisstj. að vera vakandi og koma til skjalanna strax og Ottawaráðstefnunni lýkur. Svo má minna á það, að þessi mál eru rædd í utanríkismálanefnd, og það er ekki altént heppilegt að ræða þau opinberlega til nokkurrar hlítar. Alþýðuflokknum var gefinn kostur á að koma manni í utanríkismálanefnd, en það þáði hann ekki. Um Rússa væri þess óskandi, að þeir hefðu eins mikinn áhuga á að kaupa af okkur og við á því að selja þeim. Það hefir verið reynt mikið til þess að selja þeim nokkuð af síld frá því í jan., og það var búið að útvega möguleika á því, að við keyptum af þeim í staðinn 1000 tonn af korni. Það starfaði að þessu góður maður og kunnugur í Rússlandi, en honum tókst ekki að koma því í kring. Rússar vildu heldur eiga samninga við Norðmenn, sem geta keypt margfalt meira af þeim.

Nú er tími minn þrotinn og ég get ekki talið fleira. En hv. þm. kvartaði yfir því, að landsreikningurinn fyrir 1930 væri ekki ennþá fullbúinn. Sannleikurinn er sá, að frá minni hendi er landsreikningurinn fyrir löngu afgreiddur, og nú aðeins ókominn úr prentsmiðjunni. Þetta sagði ég hv. þm. í gær og að hann þyrfti ekki annað en ganga upp í prentsmiðju og fá sér hann. En í stað þess að gera það, hefir hann kosið að gera þetta að árásarefni á stj. En þar sem hv. þm. Seyðf. talar nú með svo mikilli vandlætingu um þennan landsreikning, þá vil ég minna á, að hinn sami Haraldur nokkur Guðmundsson, sem áður var þm. Ísf., er ekki alveg óviðkomandi þessum landsreikningi. Það var á því herrans ári 1930, sem hann gerðist bankastjóri, og var þá raunar og stj. stuðningsmaður. Og nú kemur mér í hug dálítil saga. Hún er að vísu ekki beinlínis geðþekk, en hún er úr eldhúsi. Og þar sem við nú erum í eldhúsi, þá læt ég hana fara. Það var á þeim árunum, þegar það tíðkaðist að hengja lík upp í eldhúsum, til þess að verja þau rotnun, þar til næðist til prests. Gamall maður lézt eitt sinn á afskekktu býli. Það var um hávetur og ekki unnt að koma líkinu til grafar. Það var því hengt upp í eldhúsrjáfur. Þá var það eitt sinn um veturinn, að dóttir hjónanna kemur til móður sinnar og segir: „Mamma, það er farið að leka úr honum afa ofan í grautinn ! “

Ég bið náttúrlega afsökunar á að hafa farið með þessa sögu hér. En mér finnst endilega, að þegar farið er í eldhúsið frá 1930 og tekið að hræra þar í landsreikningnum, þá verði ekki komizt hjá því, að úr framliðnum hv. þm. Ísaf. leki eitthvað ofan í hann graut.