20.02.1932
Neðri deild: 6. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 638 í B-deild Alþingistíðinda. (264)
3. mál, landsreikningar 1930
Magnús Guðmundsson:
Það eru aðeins örfá orð. Ég vildi leyfa mér að beina þeirri fyrirspurn til hæstv. ráðh., hvenær landsreikningurinn sjálfur kemur á sjónarsviðið. Það er vitanlega gott að fá að sjá frv. um samþykkt á LR., en betra væri þó að fá að sjá hann sjálfan líka. ég veit að vísu, á hverju stendur. Það mun standa á að búa til svör við athugasemdum yfirskoðunarmannanna. En ég vil, að það komi fram, að það er svo langt síðan aths. voru sendar stjórninni, að svör við þeim hefðu átt að geta verið komin fyrir nokkru. Það hefði átt að vera hægt að útbýta LR. með svörum stj. og till. yfirskoðunarmannanna í þingbyrjun, eins og venja var hér áður. Í fyrra komu svör hæstv. stj. einnig seint, ekki fyrr en kom fram í apríl, og er það allt of seint. Ég er þó ekki að átelja hæstv. fjmrh. fyrir þetta, því ég býst við, að hann eigi ekki sök á því persónulega, en ég vil beina þeirri ósk til hans, að hann sjái um, að svörin komi sem allra fyrst.