22.04.1932
Neðri deild: 57. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2314 í B-deild Alþingistíðinda. (2653)

258. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga

Magnús Guðmundsson [óyfirl.]:

Það var út af orðum hv. 3. þm. Reykv., sem ég vildi segja nokkur orð. Hann sagði, að í till. beggja stóru flokkanna væri verkamannastéttin ofsótt eftir notum. Ég tók upp fjöldamörg atriði, sem sýndu, að fjvn. hefir lagt til, að strikaðar verði út stórar upphæðir, sem hafa átt að ganga til styrktar landbúnaðinum. Ég tók þetta fram til þess að fyrirbyggja, að það gæti litið svo út, að hér væri hlutdrægni á ferðinni. þessi ummæli hv. þm. eru því alveg óverðskulduð og óréttmæt. En hvað viðvíkur því, sem hann talaði um svikna samninga út af tóbakseinkasölunni, þá get ég ekkert um það sagt. Hann bar ekki mig eða minn flokk um svik, og skal ég því ekkert fara út í það; mér er það alveg óviðkomandi og veit ekki neitt um það. En svo sagði hv. þm., að við værum gengnir frá því, sem við hefðum látið uppi áður, að við vildum ekki láta stj. fá tekjuauka. Þar til er því fyrst og fremst að svara, að hér er um engan tekjuauka að ræða, heldur minnkun á útgjöldum. En ég get viðurkennt, að það kemur í svipaðan stað niður, þó að það sé ekki sama fyrir landsmenn, þegar gerður er upp landsreikningurinn á sínum tíma. En ég vil minna hv. þm. á það, að við erum ekki gengnir frá þessu máli. Það á eftir að ganga í gegnum Ed., og yfirlýsing, sem ég hefi áður gefið í þessu efni, stendur óhögguð. Við sjálfstæðismenn teljum okkur skylt að vinna að því, að fjárlagafrv. sé forsvaranlega útbúið, jafnvel þó svo kynni að fara að síðustu, að því yrði slátrað út af ágreiningi vegna annars máls. Það er vitaskuld, að það kemur fram í undirbúningi fjárlagafrv., hvernig flokkarnir lita á sínar skyldur gagnvart ríkissjóði. ég segi fyrir hond Sjálfstæðisfl., að hann er sér fyllilega meðvitandi þessarar sérstöku ábyrgðar, sem á honum hvílir. Hann vill ekki taka undir það, að þó hann sé í minni hl., þá sé hann ábyrgðarlaus.

Hv. 1. þm. N.-M. spurði mig, hvernig þessi brtt. á þskj. 487 kæmi heim við frv., sem ég flutti í þingbyrjun viðvíkjandi Menningarsjóði. Þar er því til að svara, að ég hefi litið svo á, að þar sem svo er liðið á þingtímann, muni ekki vera næsta miklar líkur til, að frv. nái fram að ganga. Frv. á þskj. 51 er sem sagt með elztu málum þingsins. Ennþá er ekki búið að taka það á dagskrá, til 2. umr. Ástæðan til, að ég flutti þessa till., er sérstaklega sú, að ég þóttist sjá fram á, að þetta mál mundi daga uppi, myndi sennilega aldrei verða tekið á dagskrá, því mér er kunnugt um, að hjá ýmsum er þetta frv. illa séð. En hvað það snertir, að ég hafði ekki tekið árið 1932 með, þá get ég sagt það eins og er, að ég bjó til þessa brtt. heima hjá mér í gær og mig minnti satt að segja, að minni hl. fjvn. hefði lagt til, að það væri á árinu 1933, sem þetta felli niður, en þegar ég tók fram þingskjölin í morgun, þá sé ég, að það var á árinu 1932. Ég vil vona, að hv. þm. geti fylgt minni brtt. engu að síður, og ég skal athuga það, hvort ekki sé rétt að koma með brtt. um að láta þetta ákvæði einnig ná til ársins 1932.