22.04.1932
Neðri deild: 57. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2318 í B-deild Alþingistíðinda. (2658)
258. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga
Magnús Guðmundsson (óyfirl.]:
Ég vil aðeins svara hæstv. fjmrh. því, að ég hefi engu við það að bæta, sem ég sagði áðan, og að mér er um það full alvara. Það er náttúrlega hægt að leiða rök að því, að sá flokkur, sem neitar að taka til greina sanngjarnar kröfur annara flokka í stórmálum, en samtímis heimtar samvinnu og hjálp þeirra flokka í öðrum málum, hann sýnir ekki sanngirni og getur þess vegna ekki vænzt þess að fá stuðning andstöðuflokkanna, þegar honum sýnist.