22.04.1932
Neðri deild: 57. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2325 í B-deild Alþingistíðinda. (2663)

258. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga

Ólafur Thors:

Ég æla ekki að fara að skipta mér mikið af þessum deilum. En ég man ekki betur en að það væri með beinum eða óbeinum atbeina jafnaðarmanna, að verðtollurinn var samþ. á þinginu 1928. Mig minnir, að verðtollurinn væri þá áætlaður 465 þús. kr., en lækkun á kaffi- og sykurtolli 200 þús. kr. Hefir því ekki verið um jöfn kaup að ræða. Ég hygg, að hægt sé að leggja fram nál. frá Nd., sem sannar það, að hv. 3. þm. Reykv. var samþykkur því, að verðtollurinn væri hækkaður, og sannar það afstöðu jafnaðarmanna til hans.

Ég skal ekki fara mörgum orðum um tekju- og eignarskattinn. En ég vil þó minna á, að í Danmörku er nú jafnaðarmannastj., sem hefir setið þar nokkuð lengi að völdum án þess lengi vel að láta sér detta í hug að hækka tekjuskattinn. Hv. þm. Seyðf. veit þó vel, að samkv. opinberum skýrslum eru Danir 4 sinnum ríkari að meðaltali á hvern mann en við. Ennfremur mun hv. þm. vita, að beinir skattar lenda þyngra á okkur en þeir gera í Danmörku, vegna misæris hér. Þetta hefir verið sýnt með dæmi, með því að taka 2 sambærileg félög og gera upp tekjuskatt þeirra á 4 árum. Bæði félögin er hugsað að hafi 100 þús. kr. höfuðstól. Bæði hafa grætt á starfsemi sinni í 4 ár samtals 60 þús. kr. Afkoma annars félagsins er nú hugsuð líkt því, sem gerist hjá nágrannaþjóðunum, þ. e. a. s. nokkuð jöfn frá ári til árs, en hitt félagið á við sömu kjör að búa og algengt er hér, stórgróði annað árið og stórtap hitt árið. Fyrra félagið græðir fyrst 14 þús., síðan 16 þús., svo 18 þús. og loks 12 þús. kr. á ári. Hið síðara græðir fyrst 25 þús., tapar síðan 100 þús., græðir svo 75 þús. og græðir loks 60 þús. Bæði hafa félögin þá afgangs eftir 4 ár, 60 þús. kr. gróða. sé svo skatturinn reiknaður út, eftir þeim taxta, sem hér gildir, þá verður skatturinn á „útlenda félaginu“, ef svo mætti nefna það, kr. 8900, en á hinu, sem starfað hefir í samræmi við hin íslenzku kjör, 39000 kr. Svona þungt leggjast skattarnir á íslenzka framleiðslu. Eins og ég gat um, þá heldu jafnaðarmennirnir í Danmörku sama „skala“ þar til fyrir ári síðan, að þeir hækkuðu skattinn um 25% vegna kreppunnar. Ég hefi borið saman skattinn hér og þar, eins og hann er nú orðinn, og komizt að þeirri raun, að hann er ennþá hærri hér. Gögnin fyrir þessu hefi ég ekki við hendina; þau liggja heima hjá mér. En verði þetta rengt, get ég sannað það síðar.

Þegar það nú er haft í huga, að fyrirtæki hér eiga við að búa misæri, sem leggst þungt á þau, og miklu þyngra en algengt er í öðrum löndum, t. d. Danmörku, og þegar þess er gætt, að jafnaðarmannastj. í Danmörku er nýbúin að hækka tekju- og eignarskattinn um 25%. og það aðeins til bráðabirgða vegna efriðs árferðis, og að samt hafa þeir lægri „skala“ nú en við, þá verður varlega að treysta á það,, að hægt sé hér að ná inn meiri tekjum með þeim skatti en nú er gert.

Hv. 3. þm. Reykv. var að gefa það í skyn, að við sjálfstæðismenn værum að svíkja stefnu okkar með því að styðja að því, að stj. fengi óbeinar tekjur í ríkissjóð. Það má nú að vísu segja, að það komi út á eitt fyrir þá, sem svelta vilja ríkissjóðinn, hvort ríkissjóður fær tekjur sínar með auknum álögum eða með því að beina í hann tekjum, sem að óbreyttum lögum eiga að renna annað. En eins og hv. 2. þm. Skagf. sagði, þá er þetta þó næsta ólíkt, því hér er þó ekki verið að leggja ný gjöld á þrautpínda skattborgara ríkisins. Ég verð þó að segja það, að mér þykir hvimleitt að greiða atkv. með sumum liðum þessa frv., en get vel sætt mig við suma þeirra. En hvað svikin snertir, sem hv. þm. var að bregða okkur um, þá er engu glatað, þótt við greiðum atkv. með þessu hér í Nd. Við geymum okkur allt fyrir það óskertan rétt til að greiða atkv. eins og við á í Ed. Hv. 2. þm. Skagf. sagði, að sú stj., sem ekki vildi unna okkur sanngirni í stjórnarskrármálinu, þyrfti ekki heldur að vænta sanngirni af okkur. Ég vil orða þetta um og segja, að stj. skuli fá fá fyllstu sanngirni, er hún gerir sig verðuga fyrir. En það er engin sanngirni, að minnihlutastj., sem fer með völd gegn vilja mikils meiri hl. kjósenda, njóti stuðnings umboðsmanna þessa meiri hl. til fjáröflunar úr vasa þjóðarinnar að meiri hl. kjósenda nauðugum. Ég álít alveg tvímælalaust, að jafnaðarmenn og sjálfstæðismenn eigi að beita hverjum heim þinglegum vopnum, sem orðið geta til þess að knýja fram stjórnarskrármálið, þ. á m. að beita skattneitun.

Ég fyrir mitt leyti vil nú bíða átekta og sjá, hverjar undirtektir Framsóknarfl. og stj. verða um höfuðmál Alþ. Ef þær verða óviðunandi, þá tel ég það skyldu okkar að knýja málið fram með þeim vopnum, er við höfum í hendinni og þingleg. eru. Er því till. mín, að flokkur okkar fari svo með þessi mál í Ed. sem stjórnarflokkurinn hefir til unnið.