22.04.1932
Neðri deild: 57. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2328 í B-deild Alþingistíðinda. (2665)
258. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga
2665Ólafur Thors:
Hv. þm. Seyðf. hefir misskilið það, sem ég sagði. Ég tók dæmið af hlutafélögum, sem höfðu sama höfuðstól. Munurinn lá eingöngu í afleiðingum af misjöfnu árferði.
Það er rangt hjá hv. þm., er hann sagði, að jafnaðarmenn hér í d. hefðu staðið á móti verðtollinum 1928. Er ekki nema sanngjarnt, að ég minni hann á það, sem skrifað stendur í nál. um verðtollinum 1928, á þskj. 596 frá því ári, og segi ég þá eins og karlinn: „Bókstafurinn blífur“. þetta nál. hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Fjárhagsnefndin hefir orðið sammála um að leggja til, að frv. verði samþ. óbreytt. Ástæða til þess, að nefndin fellst á frv., er halli sá, sem orðinn er á fjárlagafrv., sem litlar líkur eru til, að dregið verði úr að mun í meðferð þingsins á fjárl. Þar sem skoðanir nm. á skattamálum að öðru leyti eru mjög mismunandi, þó þessi sameiginlega niðurstaða hafi fengizt í þessu máli, hefir þótt rétt að láta frekari rökstuðning fyrir niðurstöðunni koma fram í umr. um málið“.
Undir þetta skrifar ásamt öðrum fjhnm. núv. hv. 3. þm. Reykv. (HV). Eins og nál. ber með sér, kveðst hann ætla að færa frekari rökstuðning fyrir niðurstöðunni við umr. um málið í deildinni. Svo sem sjá má í Alþt., sagði hann ekki eitt einasta orð við þær umr. Rökstuðningurinn hefir því beðið í 4 ár, þ. e. a. s. þar til nú, að flokksbróðir hans, hv. þm. Seyðf., ber hann fram hér í deildinni, og hljóðar, eins og menn hafa heyrt, á þá leið, að 3. þm. Reykv. er í nál. samþ. málinu, lofar rökstuðningi við umr., þegir, en greiðir atkv. gegn málinu.
Slík flokksleyndarmál held ég, að sócialistar ættu að varðveita með sjálfum sér, ekki aðeins í 4 ár, heldur um tíma og eilífið.